Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Breytingareglugerð

928/2019

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 911/2012 um vernd dýra við aflífun.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 46/2019, frá 29. mars 2019, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/723 frá 16. maí 2018 um breytingu á I. og II. viðauka við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1099/2009 um vernd dýra við aflífun að því er varðar samþykki fyrir deyfingu með lágum loftþrýstingi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31, frá 18. apríl 2019, bls. 441.

2. gr.

Matvælastofnun fer með framkvæmd þessarar reglugerðar og hefur eftirlit með því að ákvæðum hennar sé framfylgt í samræmi ákvæði laga nr. 55/2013 um velferð dýra, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer skv. X. kafla laga nr. 55/2013 um velferð dýra.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 21. gr. laga nr. 55/2013 um velferð dýra. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu 27. september 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.