Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Stofnreglugerð

927/2010

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 330/2010 frá 20. apríl 2010 um beitingu 3. mgr. 101. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gagnvart flokkum lóðréttra samninga og samstilltra aðgerða.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 77/2010 frá 11. júní 2010 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka (Samkeppni) við EES-samninginn, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 330/2010 frá 20. apríl 2010 um beitingu 3. mgr. 101. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gagnvart flokkum lóðréttra samninga og samstilltra aðgerða.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 330/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 56/2010, 7. október 2010, bls. 303.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 77/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 49/2010, 16. júní 2010, bls. 34.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2004, öðlast þegar gildi.

Með þessari reglugerð fellur úr gildi reglugerð nr. 816/2006 um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2790/1999 frá 22. desember 1999 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart flokkum lóðréttra samninga og samstilltra aðgerða.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 29. nóvember 2010.

Árni Páll Árnason.

Kjartan Gunnarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.