Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

914/2006

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu, með síðari breytingum.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir er orðast svo:

Styrkir sem veittir eru úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaga vegna alvarlegra veikinda.

Styrkir sem veittir eru úr minningarsjóðum sem starfa samkvæmt skipulagsskrá staðfestri af dómsmálaráðuneytinu samkvæmt lögum nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2007.

Fjármálaráðuneytinu, 27. október 2006.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.