Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

907/2017

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 847/2014 um verndarráðstafanir varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 4. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/129 frá 25. janúar 2017 um breytingu á framkvæmdar­reglugerð (ESB) nr. 743/2013 um verndarráðstafanir varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi, sem ætlaðar eru til manneldis, að því er varðar gildis­tíma hennar.

2. gr.

Ofangreind framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breyt­ingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. október 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Eggert Ólafsson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica