Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 9. feb. 2018

886/2014

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 28/2012 um kröfur vegna útgáfu vottorða vegna innflutnings á tilteknum samsettum afurðum til Sambandsins og umflutnings þeirra gegnum það.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. og II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 28/2012 um kröfur vegna útgáfu vottorða vegna innflutnings á tilteknum samsettum afurðum til Sambandsins og umflutnings þeirra gegnum það og um breytingu á ákvörðun 2007/275/EB og reglugerð (EB) nr. 1162/2009.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 468/2012 frá 1. júní 2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 28/2012 um kröfur varðandi útgáfu vottorða vegna innflutnings til Sambandsins og umflutnings um Sambandið á tilteknum samsettum afurðum.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/731 frá 25. apríl 2017 um breytingu á fyrirmyndum að heilbrigðisvottorðum BOV-X, BOV og OVI fyrir dýr og dýraafurðir, sem settar eru fram í I. og II. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 206/2010, fyrirmyndum að vottorðum GEL, COL, RCG og TCG, sem settar eru fram í II. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/759, og fyrirmynd að vottorði fyrir samsettar afurðir, sem sett er fram í I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 28/2012, í tengslum við reglur um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi svampheilakvilla.

2. gr.

Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi gildir með þeim takmörkunum sem leiða af lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

4. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli, lög nr. 55/1998 um sjávarafurðir, lög nr. 71/2008 um fiskeldi, lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lög nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum, nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.

5. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995 um matvæli, laga nr. 54/1990 um innflutning dýra og laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

7. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.