Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

885/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð um sameiginlegar reglur um almenningsflug og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu nr. 812/2012.

1. gr. Innleiðing.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, sem orðist svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/4 frá 5. janúar 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008 að því er varðar grunnkröfur um umhverfisvernd, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 55/2016 frá 18. mars 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 27 frá 12. maí 2016, bls. 721.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., 136. gr. a og 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 13. október 2016.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.