Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

879/2020

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 674/2017 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 18. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/319 frá 6. febrúar 2019 um breytingu á IX. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 og XV. viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar heilbrigðisvottun við innflutning til Sambandsins er varðar smitandi svampheilakvilla. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2020, frá 12. júní 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50, frá 23. júlí 2020, bls. 466.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. ágúst 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.