Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 3. mars 2023

878/2020

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 477/2017 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 24. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2164 frá 17. desember 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 889/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara að því er varðar lífræna framleiðslu, merkingar og eftirlit. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2020 frá 14. júlí 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, frá 13. ágúst 2020, bls. 142.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. ágúst 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.