Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

87/1990

Reglugerð um fráveitu á Akureyri

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um fráveitu í lögsagnarumdæmi Akureyrar.

2. gr.

Akureyrarbær starfrækir fráveituna, en bæjarsjóður kostar rekstur hennar og framkvæmdir við hang. Bæjarstjórn ákveður framkvæmdir við fráveituna og veitir árlega fé á fjárhagsáætlun bæjarsjóðs til reksturs og framkvæmda við hana.

Tæknideild bæjarins fer með umsjón, hönnun, framkvæmdir og rekstur fráveitu bæjarins í umboði bæjarstjórnar og undir yfirumsjón bæjarverkfræðings.

3. gr.

Fráveitan veitir fráveituvatni, sem getur verið húsaskólp, iðnaðarskólp, ofanvatn, frárennslisvatn hitaveitu og ræsivatn, um fráveitulagnir frá byggð til viðtaka.

Einföld fráveita veitir skólpi og ofanvatni saman í einni fráveitulögn, en tvöföld fráveita veitir skólpi og ofanvatni í tveim aðskildum samliggjandi fráveitulögnum.

Bæjarsjóður á allar holræsalagnir fráveitunnar, útrásir, stofnræsi, götuholræsi, ofanvatnsræsi í götum og opnum svæðum og götufráræsi að fráræsum húseigna. Ennfremur allan fráveitubúnað, brunna, niðurföll, dælustöðvar og hreinsistöðvar.

4. gr.

Þar sem fráveita bæjarins nær til, skal húseigendum séð fyrir götufráræsi frá götuholræsi að lóðamörkum húseigna. Þar sem fráveitan liggur um lóðir, skal séð fyrir tengigrein á holræsalögn. Tæknideild bæjarins ákveður legu götufráræsa og tengigreina.

5. gr.

Húseigendum sem eiga húseignir við vegi eða opin svæði, þar sem fráveita bæjarins liggur, er skylt að leggja á Sinn kostnað fráræsi frá húseignum sínum og tengja þau við fráveituna. Þegar lögð er tvöföld fráveita, skulu húseigendur halda skólpi og ofanvatni aðskildu í tvöfaldri fráræsislögn og tengja hang tvöfaldri fráveitu bæjarins.

6. gr.

Þegar ekki er unnt að ná nægilegum halla á fráræsi húseignar að fráveitu bæjarins, skal húseigandi leiða fráveituvatn frá húseigninni að safnbrunni með sjálfvirkum dælubúnaði, sem dælir fráveituvatninu að brunni, þannig staðsettum, að hægt sé að veita fráveituvatninu frá honum í fráveitu bæjarins.

7. gr.

Þar sem fráveita bæjarins nær ekki til, skulu húseigendur leiða fráveituvatn frá fráræsum húseigna um rotþrær og siturleiðslur að viðtaka.

Þegar fráveita bæjarins hefur verið lögð, skulu húseigendur kosta og tengja fráræsi húseigna við hana.

8. gr.

Þegar tengja skal fráræsi húseigna við fráveitu bæjarins eða veita fráveituvatni frá þeim um rotþró, sé þess ekki kostur að tengja fráræsislögn frá húseign við fráveituna, skal sækja um það til byggingareftirlits bæjarins á þar til gerðum eyðublöðum, sem þar eru látin í té. Umsóknir skulu undirritaðar af húseigendum eða fullgildum umboðsmönnum þeirra, ásamt pípulagningameistara þeim, sem verkið á að vinna.

Umsóknum skulu fylgja teikningar af fráveitulögnum húsa og lóða og fráræsum frá húseignum, sem tengja á fráveitu bæjarins.

Umsóknum um rotþrær skulu fylgja teikningar, er sýni gerð þeirra og staðsetningu og siturleiðslur að viðtaka, auk teikninga af fráveitulögnum húsa og lóða

9. gr.

Teikningar skulu fylgja almennum reglum um hönnun fráveitulagna í húsum sbr. byggingarreglugerð og byggingarskilmála.

10. gr.

Byggingareftirlit bæjarins skal hafa eftirlit með því að fráveitulagnir frá húseignum séu lagðar samkvæmt samþykktum teikningum. Áður en lagnir eru huldar, skal það einnig taka út og viðurkenna fráræsi frá húseignum og tengingar þeirra við fráveitu bæjarins eða rotþrær.

11. gr.

Eigendum fasteigna er skylt að hlíta því , að lagnir fráveitu bæjarins séu lagðar um lóðir þeirra eða lönd og fram fari á þeim nauðsynlegt viðhald. Akureyrarbæ er skylt að halda raski í lágmarki og ganga snyrtilega um og færa allt til fyrra horfs eins og við verður komið.

12. gr.

Ekki er heimilt að veita fráveituvatni frá húseignum í fráveitu bæjarins, ef það inniheldur mikið af fitu frá stórum eldhúsum og matvælaiðnaði, súrum vökvum og öðrum hættulegum efnaúrgangi frá iðnaðar- og framleiðslustarfsemi, bensíni og olíum frá bensínstöðvum, bifeiðaverkstæðum og smurstöðvum, sandi frá þvottaplönum eða öðru sem valdið getur skemmdum og rekstrartruflunum á fráveitu bæjarins og skaðlegri mengun á viðtaka.

Þar sem hætta er á að fráveituvatn innihaldi ofangreind efni, her eiganda húseignar að gera ráðstafanir til að fjarlægja þau eða gera óskaðleg, áður en fráveituvatninu er veitt í frá veitu bæjarins.

13. gr.

Húseigendum er skylt að halda vel við fráveitulögnum húseigna sinna og sjá um hreinsun á fráræsum og gæta þess að þau stíflist ekki.

Rotþrær her að hreinsa að minnsta kosti einu sinni á ári. Skiljur á fráræsislögnum ber að hreinsa reglulega þannig að tryggt sé að hreinsibúnaðurinn gegni hlutverki sínu.

14. gr.

Þar sem hætta er á, að fráveituvatn frá fráveitu bæjarins bæði til baka um fráræsislagnir frá húseignum, vegna vatnsborðsriss af völdum ofanvatns eða hárrar sjávarstöðu, skulu húseigendur koma fyrir sjálfvirkum flóðlokum við gólfniðurföll.

15. gr.

Af öllum fasteignum í lögsagnarumdæmi Akureyrar, sem liggja við vegi eða opin svæði, þar sem holræsalagnir fráveitu bæjarins liggja, skal greiða árlega fráveitugjald og skal því varið til þess að standa straum af kostnaði við fráveitu bæjarins.

Eigendur fasteigna, sem ekki eiga þess kost að tengja fráræsi húseigna sinna við fráveitu bæjarins eru undanþegnir fráveitugjaldi.

16. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa. Fráveitugjald skal miðast við ákveðinn hundraðshluta af álagningarstofni og hlíta ákvæðum um minnsta og mesta gjald, samkvæmt gjaldskrá sem bæjarstjórn setur og ráðuneytið staðfestir.

17. gr.

Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

Skráður eigandi fasteignar her ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds.

18. gr.

Fráveitugjald má innheimta með lögtaki og er það tryggt með lögveðsrétti í eigninni mestu 2 ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

19. gr.

Brot á reglugerð þessari varðar sektum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Mál varðandi brot á reglugerð þessari skal farið með að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af bæjarstjórn Akureyrar, staðfestist hér með samkvæmt lögum nr. 87/1970 um gjöld til holræsa, gangstétta og varanlegs slitlags á götum á Akureyri, vatnalögum nr. 15/1923 og 6. og 9. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 til þess að öðlast gildi þegar í stað.

Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um holræsagjöld á Akureyri nr. 59/1972.

Félagsmálaráðuneytið, 14. febrúar 1990.

F. h. r.

Berglind Ásgeirsdóttir.

Hólmfríður Snæbjörnsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.