Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

867/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 579/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 245/2009, er varðar visthönnun vöru sem notar orku.

1. gr.

Heiti reglugerðar nr. 579/2011 verður: Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 245/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun flúrpera án innbyggðrar straumfestu, háþrýstra úrhleðslupera og varðandi straumfestur og lampa fyrir slíkar ljósaperur.

2. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 6g, 10, 26h og 33 í IV. kafla í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 313/2015, frá 11. desember 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1428 frá 25. ágúst 2015 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 244/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun óstefnuvirkra ljósapera til heimilisnota og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 245/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun flúrpera án innbyggðrar straumfestu, háþrýstra úrhleðslupera og varðandi straumfestur og lampa fyrir slíkar ljósaperur og um niðurfellingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/55/EB og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1194/2012 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun stefnuvirkra ljósapera, ljósdíóðupera og tengds búnaðar.

3. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1428 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18/2016, 31. mars 2016, bls. 105.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. október 2016.

Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Erla Sigríður Gestsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.