Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Breytingareglugerð

841/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017.

1. gr.

Eftirfarandi breyting verður á 4. mgr. 44. gr. reglugerðarinnar:

Við 4. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Njóti útlendingur aðstoðar löglærðs talsmanns er Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála heimilt að birta ákvörðun sem tekin er á grundvelli laga um útlendinga með rafrænum hætti.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 4. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 28. júní 2022.

Jón Gunnarsson.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.