Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

841/2018

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/884 um að koma á nauðsynlegum tækniforskriftum og verklagsreglum fyrir samtengingarkerfi skráa sem komið var á með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/101/EB.

1. gr.

Eftirfarandi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 1a í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 159/2016, frá 8. júlí 2016, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/884 frá 8. júní 2015 um að koma á nauðsynlegum tækniforskriftum og verklagsreglum fyrir samtengingarkerfi skráa sem komið var á með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/101/EB.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2015/884 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 52/2016, 22. september 2016, bls. 423-431.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 158. gr., sbr. 2. mgr. 147. gr., laga nr. 2/1995, um hlutafélög, 135. gr., sbr. 2. mgr. 121. gr., laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög, og 11. gr. laga nr. 17/2003, um fyrirtækjaskrá, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. ágúst 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Sigurbjörg S. Guðmundsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.