Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

833/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 525/2013 um tímasetningu, stjórnun og aðra þætti í tengslum við uppboð á heimildum til losunar gróðurhúsalofttegunda.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1868 frá 28. ágúst 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1031/2010 til að aðlaga uppboð losunarheimilda að reglunum í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir fyrir tímabilið 2021 til 2030 og að flokkun losunarheimilda sem fjármálagerninga samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB sem vísað er til í tölulið 21ala í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 23/2022, frá 4. febrúar 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18 frá 17. mars 2022, bls. 733 - 755.

2. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 28. gr. laga nr. 70/2012, um loftslagsmál ogöðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 9. júní 2022.

F. h. r.

Sigurður H. Helgason.

Kjartan Dige Baldursson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.