Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

833/2014

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 397/2013 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 um nákvæmar skilgreiningar á aukefnum í matvælum sem eru tilgreind í II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 78/2014, frá 17. maí 2014, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1274/2013 frá 6. desember 2013 um breytingu og leiðréttingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnar­innar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar tiltekin matvælaaukefni. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36, frá 12. júní 2014, bls. 105.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. september 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica