Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Breytingareglugerð

830/2019

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1000/2005 um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir.

1. gr.

Í stað II. viðauka við reglugerðina kemur nýr II. viðauki, sem er birtur á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 1/2019, með heimild í 2. mgr. 4. gr., sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 15/2005 um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/996 frá 19. maí 2015 um að koma á sameiginlegum matsaðferðum fyrir hávaða samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB, sem vísað er til í tölulið 32ga VI. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 207/2017, þann 27. október 2017.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 3. september 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.