Fara beint í efnið

Prentað þann 24. apríl 2024

Stofnreglugerð

828/2012

Reglugerð um einkennisbúninga og merki fangavarða, forstöðumanna fangelsanna og forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um gerð og notkun einkennisbúninga, einkennismerki, einkennismerkingar og fangavarðaskilríki Fangelsismálastofnunar ríkisins.

2. gr. Skýringar.

Með einkennisbúningum Fangelsismálastofnunnar ríkisins er í reglugerð þessari átt við þann einkennda fatnað sem forstjóri fangelsismálastofnunar hefur samþykkt til notkunar hjá fangelsunum.

Með einkennismerkjum fangavarða er átt við armmerki, húfumerki, merkingarnar "FANGAVÖRÐUR", einkennishnappa og stöðueinkenni.

Með fangavarðaskilríki fangelsismálastofnunar er átt við skilríki fangavarða sem Fangelsismálastofnun ríkisins gefur út og eru undirrituð af forstjóra hennar.

3. gr.

Fangaverðir og aðrir starfsmenn fangelsa skulu bera einkennisfatnað samkvæmt þessari reglugerð þó með þeirri undantekningu að samkvæmt ákvörðun eða með samþykki yfirmanns geta þeir starfað óeinkennisklæddir þegar eðli verkefnisins er slíkt að það sé æskilegt.

Við afgreiðslu á einkennisfatnaði skal taka fullt tillit til þess að fatnaður henti báðum kynjum.

Konur sem gegna fangavarðastörfum á meðgöngutíma, skulu eiga kost á að fá skokk og síðbuxur við hæfi samkvæmt nánari ákvörðun fangelsismálastofnunar.

Forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins og forstöðumenn fangelsa geta að jafnaði verið óeinkennisklæddir við dagleg störf, en skulu vera einkennisklæddir við sérstakar athafnir og hátíðleg tækifæri, þegar það telst vera viðeigandi.

4. gr. Úthlutun og skylda til að eiga tiltækan einkennisfatnað.

Fangelsismálastofnun ríkisins skal útvega einkennisfatnað og annan nauðsynlegan búnað samkvæmt þessari reglugerð.

Úthluta skal einkennisfatnaði og öðrum búnaði samkvæmt því sem ákveðið er í verklagsreglum. Haldin skal skrá yfir afhentan einkennisfatnað og annan búnað.

Þeim sem úthlutað er einkennisfatnaði samkvæmt reglugerð þessari er skylt að eiga hann tiltækan.

Einkennisbúninga, merki og fangavarðaskilríki Fangelsismálastofnunar ríkisins er einungis heimilt að nota í þágu starfsemi fangelsanna, sbr. þó 19. gr.

II. KAFLI Einkennismerki fangavarða.

5. gr. Merking á jakka 1.

Á jakka 1 skal vera lítið skjaldarmerki úr málmi, 22 mm að hæð, á hvoru kragahorni.

6. gr. Armmerki.

Fangavarðamerki

Armmerki skal vera hringlaga úr svörtu klæði, 8 sm á hæð og 6,8 sm í þvermál. Á því skal vera skjaldarmerki Íslands, ísaumað, 3,5 sm á hæð. Utan um skjaldarmerki Íslands, skal vera ísaumuð, með gylltum þræði, 1 mm breið rönd og önnur rönd, 2 mm breið og skal hún vera 2 mm frá jaðri armmerkisins. Í bilinu á milli randanna, sem skal vera 1 sm að breidd, skal vera ísaumað, með gylltum þræði, fyrir ofan skjaldarmerki Íslands orðið "FANGAVÖRÐUR" með stafagerðinni Arial, 7 mm á hæð.

7. gr. Húfumerki.

Húfumerki á einkennishúfu 1 skal vera skjaldarmerki Íslands, 4 sm að hæð, úr gylltum málmi. Húfumerki á einkennishúfu 2 skal vera ísaumað fangavarðarmerki.

Húfa 3 skal vera ómerkt.

8. gr. Einkennishnappar.

Einkennishnappar á búningum fangavarða skulu vera hringlaga, úr gylltum málmi, með upphleyptri mynd af skjaldarmerki Íslands. Þeir skulu annars vegar vera 16 mm í þvermál og hins vegar 21 mm í þvermál. Festing hnappanna skal vera með tvennum hætti, annars vegar saumaðir og hins vegar pressaðir (smella).

9. gr. Merkingin "FANGAVÖRÐUR".

Fangavarðamerki

Merkinguna "FANGAVÖRÐUR" ofan við hægri brjóstvasa skal sauma á svartan borða, 3 sm á hæð og 10 sm á breidd, þar sem stendur ísaumað með gylltum þræði "FANGAVÖRÐUR", stafagerð Arial, hæð leturs 11 mm.

10. gr. Stöðueinkenni.

Einkenni sem sýna starfsstig skulu vera á einkennisbúningum fangavarða. Um stöðueinkenni fer eftir IV. kafla.

11. gr. Einkennisnúmer fangavarða.

Fangaverðir, sem hafa lokið prófi frá Fangavarðaskóla ríkisins, svo og fangaverðir sem stunda þar nám, skulu fá úthlutað fjögurra stafa einkennisnúmeri. Tveir fyrstu stafir númersins ráðast af byrjunarári í fangavörslunni en tveir þeir síðari segja til um röðun þeirra sem ráðnir eru á sama ári. Ef tveir eða fleiri hefja störf á sama tíma skal sá sem eldri er fá lægra númer. Fangelsismálastofnun ríkisins ákveður númer annarra starfsmanna eftir því sem við á. Einkennisnúmer skulu vera ísaumuð með gylltum þræði í svartan efnisbút sem skal vera 25 mm á hæð og 47 mm á breidd. Tölustafirnir skulu vera af gerðinni Arial, 12 mm á hæð. Fangavarðanúmer skal festa yst á smeyga fangavarða. Aldrei má úthluta einkennisnúmeri fangavarða sem annar hefur borið.

III. KAFLI Einkennisfatnaður Fangelsismálastofnunar ríkisins.

12. gr. Hátíðarbúningur, föt 1.

Föt 1 samanstanda af síðum, tvíhnepptum jakka og buxum úr svörtu efni, sama efni skal vera í báðum flíkunum, hvít skyrta, svart bindi, svartir sokkar, svartir lágir leðurskór, hvítir hanskar og svartur, einhnepptur regnfrakki. Frakkann skal aðeins nota þegar staðinn er heiðursvörður og skal fangelsismálastofnun eiga til taks minnst 10 frakka.

Einkennishúfa 1 skal vera úr svörtu efni með hvítum kringlóttum kolli með 5 sm breiðri uppistandandi gjörð, 5 sm breiðri reisn, gljáleðurskyggni og svartri hökuól eða gylltum 12 mm breiðum borða, þétt ofnum með ísaumuðu upphleyptu munstri með gullþræði, er fest sé á gjörðina með tveimur litlum einkennishnöppum. Á gjörðinni skal vera svartur borði úr upphleyptu efni. Framan á reisninni skal vera skjaldarmerki Íslands, 4 sm að hæð, úr málmi. Húfa 1 skal borin samkvæmt sérstakri ákvörðun yfirmanns í fangelsi hverju sinni.

Fangaverðir skulu klæðast hátíðarbúningi á eftirfarandi dögum: Páskadag, annan í páskum, hvítasunnudag, annan í hvítasunnu, aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag. Annars eftir sérstakri ákvörðun forstöðumanns fangelsisins.

Forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins skal hafa hátíðarbúning til afnota við stærri athafnir.

13. gr. Almennur fangavarðafatnaður, föt 2.

Föt 2 samanstanda af mittisjakka með axlarsprotum og buxum úr svörtu, slitsterku efni, skyrtu og pólóbol, samkvæmt nánari ákvörðun í verklagsreglum, svart bindi, svört peysa, svartir sokkar, svartir lágir skór/inniskór, svart belti og svartir hanskar. Einkennishúfa skal vera svört derhúfa úr sterku efni með fangavarðarmerki.

14. gr. Sérstakur útifatnaður, föt 3.

Föt 3 er svartur galli sem samanstendur af síðri úlpu með lausu fóðri og buxum úr slitsterku, lipru, vatns- og vindheldu efni með góðri útöndun (tex efni). Endurskin skal vera aftan á úlpu. Ennfremur kuldahúfa og kuldaskór/íþróttaskór.

15. gr. Annar fatnaður og búnaður.

Fangaverðir skulu, samkvæmt nánari ákvörðun forstöðumanna fangelsanna, fá annan fatnað og búnað sem þörf er á vegna starfa þeirra, svo sem vinnusloppa, samfestinga, öryggishjálma, öryggisskó, öryggisgleraugu, vinnuvettlinga, stígvél og tækjabelti með tilheyrandi búnaði.

Um einkennismerkingar á fatnað og annan búnað, sem grein þessi tekur til, skal fjallað í verklagsreglum.

16. gr. Útvegun og úthlutun einkennisfatnaðar.

Fangelsismálastofnun skal útvega einkennisfatnað og annan nauðsynlegan búnað samkvæmt reglugerð þessari.

Úthluta skal einkennisfatnaði og öðrum búnaði samkvæmt því sem ákveðið er í verklagsreglum. Haldin skal skrá yfir afhentan einkennisfatnað og annan búnað.

17. gr. Viðhald einkennisfatnaðar.

Einkennisfatnaði sem reglugerð þessi tekur til skal vel við haldið.

Starfsmenn skulu sjálfir bera kostnað af venjulegu viðhaldi einkennisfatnaðar, en þó skal vinnuveitandi bera kostnað af tveimur fatahreinsunum á ári og öðrum hreinsunum sem forstöðumenn fangelsanna meta af sérstökum ástæðum.

Meiriháttar tjón á einkennisfatnaði, sem rekja má til starfans, skal bætt með nýjum einkennisfatnaði.

18. gr. Eignarheimild og skil á einkennisfatnaði við starfslok.

Einkennisfatnaður sem starfsmaður hefur fengið afhentan samkvæmt reglugerð þessari og notað lengur en í tvö ár skal teljast hans eign. Tilheyrandi einkennum og búnaði ber honum þó að skila við starfslok.

Starfsmenn sem láta af störfum eftir að hafa starfað skemur en í tvö ár skulu skila einkennisfatnaði, búnaði og einkennum, sem þeir hafa fengið afhent vegna fangavarðarstarfs.

Heimilt er að undanþiggja skilaskyldu tiltekinn hluta einkennisfatnaðar.

19. gr. Lán einkennisbúninga og búnaðar.

Forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins er heimilt við sérstök undantekningartilvik að lána einkennisbúninga og annan búnað sem tengist starfsemi fangelsanna.

Forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins getur samþykkt útleigu á einkennisfatnaði vegna framleiðslu kvikmynda, sjónvarpsþátta eða af sambærilegu tilefni, enda telji hann ekkert því til fyrirstöðu.

IV. KAFLI Stöðueinkenni.

20. gr.

Stöðueinkenni fangavarða, forstöðumanna og forstjóra fangelsismálastofnunar skulu vera með eftirfarandi hætti:

Stöðueinkenni

21. gr. Óskólagengnir fangaverðir og nemar.

Fangavörður án skóla og fangavarðarnemi skal bera einn gylltan borða 3 mm breiðan nær hálsmáli.

22. gr. Fangavörður.

Fangavörður að loknum skóla skal bera einn gylltan borða 6 mm breiðan nær axlarbrún og annan 3 mm, 2 mm innar og einn gylltan borða 3 mm breiðan nær hálsmáli. Á gjörð einkennishúfu skal vera svartur borði úr upphleyptu efni.

23. gr. Fangavörður í sérhæfðu starfi.

Fangavörður í sérhæfðu starfi skal bera einn gylltan borða 6 mm breiðan nær axlarbrún og annan 3 mm, 2 mm innar og einn gylltan borða 3 mm breiðan nær hálsmáli. Hann skal bera eina slétta gyllta plötu, 24 x 10 mm að stærð á hvorum axlarsmeyg. Á gjörð einkennishúfu skal vera svartur borði úr upphleyptu efni.

24. gr. Aðstoðarvarðstjóri.

Aðstoðarvarðstjóri skal bera einn gylltan borða 6 mm breiðan nær axlarbrún og annan 3 mm, 2 mm innar og einn gylltan borða 3 mm breiðan nær hálsmáli. Hann skal bera tvær sléttar gylltar plötur, 24 x 10 mm að stærð á hvorum axlarsmeyg. Á jakka ber hann eitt lítið skjaldarmerki úr málmi, 22 mm að hæð, á hvoru kragahorni. Á gjörð einkennishúfu skal vera svartur borði úr upphleyptu efni.

25. gr. Varðstjóri.

Varðstjóri skal bera tvo gyllta borða 6 mm breiða nær axlarbrún með 2 mm millibili og einn gylltan borða 3 mm breiðan nær hálsmáli. Hann skal bera eina gyllta fimmarma stjörnu, 16 mm í þvermál, á hvorum axlarsmeyg. Hann skal bera einn 10 mm breiða borða á hvorri jakkaermi ofan við ermahnappa, með 5 mm millibili og ná milli ermasauma. Á jakka ber hann eitt lítið skjaldarmerki úr málmi, 22 mm að hæð, á hvoru kragahorni. Á gjörð einkennishúfu skal vera gylltur borði úr upphleyptu efni.

26. gr. Deildarstjóri.

Deildarstjóri skal bera tvo gyllta borða 6 mm breiða nær axlarbrún með 2 mm millibili og einn gylltan borða 3 mm breiðan nær hálsmáli. Hann skal bera tvær gylltar fimmarma stjörnur, 16 mm í þvermál, á hvorum axlarsmeyg. Hann skal bera tvo 10 mm breiða borða á hvorri jakkaermi ofan við ermahnappa, með 5 mm millibili og ná milli ermasauma. Á jakka ber hann eitt lítið skjaldarmerki úr málmi, 22 mm að hæð, á hvoru kragahorni. Á gjörð einkennishúfu skal vera gylltur borði úr upphleyptu efni.

27. gr. Forstöðumaður.

Forstöðumaður skal bera tvo gyllta borða 6 mm breiða nær axlarbrún með 2 mm millibili og einn gylltan borða 3 mm breiðan nær hálsmáli. Hann skal bera þrjár gylltar fimmarma stjörnur, 16 mm í þvermál, á hvorum axlarsmeyg. Hann skal bera þrjá 10 mm breiða borða á hvorri jakkaermi ofan við ermahnappa, með 5 mm millibili og ná milli ermasauma. Á jakka ber hann eitt lítið skjaldarmerki úr málmi, 22 mm að hæð, á hvoru kragahorni. Á gjörð einkennishúfu skal vera gylltur borði úr upphleyptu efni.

28. gr. Forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins.

Forstjóri skal bera tvo gyllta borða 6 mm breiða nær axlarbrún með 2 mm millibili og einn gylltan borða 3 mm breiðan nær hálsmáli. Hann skal bera 4 gylltar fimmarma stjörnur, 16 mm í þvermál, á hvorum axlarsmeyg. Hann skal bera fjóra 10 mm breiða borða á hvorri jakkaermi ofan við ermahnappa, með 5 mm millibili og ná milli ermasauma. Á jakka ber hann eitt lítið skjaldarmerki úr málmi, 22 mm að hæð, á hvoru kragahorni. Á gjörð einkennishúfu skal vera gylltur borði úr upphleyptu efni.

V. KAFLI Fangavarðaskilríki Fangelsismálastofnunnar ríkisins.

29. gr. Útgáfa fangavarðaskilríkjanna.

Forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins gefur út fangavarðaskilríki. Á fangavarðaskilríkjunum skulu vera einkennismerki fangavarða og áritunin "Fangavörður". Þar skal vera andlitsmynd af skírteinishafa og upplýsingar um nafn hans og kennitölu, stöðuheiti, einkennisnúmer og útgáfudag skilríkisins. Þá skal skilríkið vera undirritað af forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins og bera stimpil stofnunarinnar. Að öðru leyti ákveður fangelsismálastofnun útlit fangavarðaskilríkja í verklagsreglum.

30. gr. Notkun fangavarðaskilríkjanna.

Þegar fangavörður er að störfum, skal hann geta sannað á sér deili með framvísun skilríkisins.

31. gr.

Fangavarðaskilríki eru afhent við útskrift úr Fangavarðaskóla Fangelsismálastofnunar ríkisins, við skipun eða eftir 2 ára samfellt starf.

Fangavarðaskilríki eru eign Fangelsismálastofnunar ríkisins.

Þegar starfsmenn, sem fengið hafa afhent fangavarðaskilríki láta af störfum, skulu þeir skila fangavarðaskilríkjum sínum.

VI. KAFLI Verklagsreglur o.fl.

32. gr.

Forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins getur sett nánari fyrirmæli um notkun einkennisbúninga.

Fangelsismálastofnun ríkisins skal, að höfðu samráði við Fangavarðafélag Íslands, setja verklagsreglur um gerð og útfærslu einkennisfatnaðar, klæðaburð, þ.m.t. um leyfilega samsetningu einkennisklæðnaðar og samræmi í klæðaburði, og úthlutun einkennisfatnaðar og búnaðar, bæði reglulega úthlutun einkennisfatnaðar og um úthlutun til þeirra sem gegna afleysingastörfum. Þar má ákveða að úthlutun falli niður þegar fangaverðir eru í launalausu leyfi eða í fæðingarorlofi.

Forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins skal í verklagsreglum kveða nánar á um skilgreiningu á litum sem nota skuli í einkennismerkjum og einkennisfatnaði fangavarða.

Forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins getur kveðið nánar á um gerð og notkun fangavarðaskilríkja.

Heimilt er að úthluta fangavörðum fatabeiðnum í stað reglubundinnar úthlutunar einkennisfatnaðar ef þeir þurfa, samkvæmt ákvörðun yfirmanns, að vinna óeinkennisklæddir. Forstöðumenn fangelsanna ákveða fjárhæð slíkrar úthlutunar og geta sett henni nánari skilyrði.

VII. KAFLI Gildistaka.

33. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 80. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 49/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um einkennisfatnað, merki og búnað fangavarða og forstöðumanna fangelsanna nr. 829 frá 19. nóvember 1999.

Ákvæði til bráðabirgða.

Eftir gildistöku reglugerðar þessarar er samkvæmt ákvörðun fangelsismálastofnunar heimilt að nota áfram einkennisfatnað samkvæmt reglugerð nr. 829 frá 19. nóvember 1999.

Innanríkisráðuneytinu, 26. september 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.