Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

827/2010

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 824/2005 um takmörkun á notkun skaðlegra gróðurhindrandi efna og/eða búnaðar á skip.

1. gr.

Við 7. gr. bætist ný málsgrein sem orðast svo:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 536/2008 frá 13. júní 2008 um að hrinda í framkvæmd 3. mgr. 6. gr. og 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 782/2003 um bann við því að nota lífræn tinsambönd á skip og breytingar á þeirri reglugerð, sem vísað er til í tl. 56p, V. kafla, XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 73/2010 þann 11. júní 2010, sem birt var í EES-viðbæti nr. 56, 7. október 2010, skal öðlast gildi hér á landi sem hluti af reglugerð þessari, og er birt sem fylgiskjal 2 við reglugerðina.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt v-lið 6. gr. laga nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda, sbr. og 18. gr. laga nr. 52/1988 um eiturefni og hættuleg efni.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 25. október 2010.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.