Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Stofnreglugerð

825/2008

Reglugerð um innihald árshlutareikninga.

1. gr. Innihald árshlutareikninga.

Félög sem semja árshlutareikninga skv. VII. kafla A, í lögum um ársreikninga nr. 3/2006, skulu sýna í styttum efnahagsreikningi og styttum rekstrarreikningi, sbr. 3. mgr. 87. gr. a. í lögum um ársreikninga, allar fyrirsagnir og millisamtölur sem voru í síðasta ársreikningi félagsins og þær völdu skýringar sem gerð er krafa um samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastaðli (IAS) nr. 34, um árshlutareikninga. Aðrar sérlínur eða skýringar skulu einnig sýndar ef vöntun þeirra gæfi villandi mynd af eignum og skuldum, fjárhagsstöðu og rekstrarafkomu.

Sýna skal við hvern lið í efnahagsreikningi, sbr. 1. mgr., samsvarandi upplýsingar í ársreikningi næstliðins reikningsárs.

Sýna skal við hvern lið í rekstrarreikningi, sbr. 1. mgr., samsvarandi upplýsingar fyrir samsvarandi tímabil næstliðins reikningsárs.

Í skýringum með árshlutareikningi skal leitast við að veita fullnægjandi upplýsingar og tryggja með sem bestum hætti að fram komi upplýsingar um mikilvægar breytingar á fjárhæðum og hvers konar aðrar mikilvægar breytingar á því tímabili sem um ræðir. Enn fremur skulu skýringar með árshlutareikningi innihalda nægjanlegar upplýsingar til að bera hann saman við ársreikning félagsins.

2. gr. Viðskipti tengdra aðila.

Í árshlutaskýrslu stjórnar, sbr. 87. gr. b. í lögum um ársreikninga, skulu koma fram upplýsingar um meiri háttar viðskipti tengdra aðila:

  1. Ef þau hafa haft veruleg áhrif á fjárhagsstöðu eða rekstrarafkomu félagsins á tímabilinu.
  2. Ef einhverjar breytingar hafa orðið á viðskiptum þeirra sem greint var frá í næstliðnum ársreikningi og gætu haft veruleg áhrif á fjárhagsstöðu og rekstrarafkomu á tímabilinu.

Félag sem hefur skuldabréf sín skráð á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, og ber ekki skylda til að gera árshlutareikning, sbr. 87. gr. d. í lögum um ársreikninga, skal að minnsta kosti upplýsa sérstaklega um lífeyrisskuldbindingar og aðrar sameiginlegar skuldbindingar félagsins og tengdra aðila.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, með síðari breytingum.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2007/14/EB frá 8. mars 2007 um nákvæmar reglur til framkvæmdar tilteknum ákvæðum tilskipunar 2004/109/EB um samhæfingu krafna um gagnsæi í tengslum við upplýsingar um útgefendur verðbréfa sem eru skráð á skipulegan markað, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2008 dags. 1. febrúar 2008.

4. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 15. ágúst 2008.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Þórður Reynisson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.