Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 29. maí 2021

822/2019

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 896/2012 um hvaða flugrekendur heyra undir umsjón Íslands í viðskiptakerfi með losunarheimildir.

1. gr.

Við 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr stafliður, j-liður, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/226 frá 6. febrúar 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun 2003/87/EB 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint, sem vísað er til í lið 21al í XX. viðauka við EES-samninginn, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 177/2019 frá 14. júní 2019. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti nr. 49, 20. júlí 2019, bls. 298-400.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2019/226 frá 6. febrúar 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun 2003/87/EB 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint, sem vísað er til í lið 21al í XX. viðauka við EES-samninginn, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 177/2019 frá 14. júní 2019.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 4. mgr. 16. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 3. september 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.