Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Stofnreglugerð

811/2006

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar ráðsins (EB) nr. 1/2003 frá 16. desember 2002 um framkvæmd samkeppnisreglna sem mælt er fyrir um í 81. gr. og 82. gr. sáttmálans.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130/2004 frá 24. september 2004 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1/2003 frá 16. desember 2002 um framkvæmd samkeppnisreglna sem mælt er fyrir um í 81. og 82. gr. sáttmálans.

2. gr.

Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1/2003 hefur áður verið birt sem fylgiskjal með reglugerð nr. 652/2005 sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 2005, bls. 1419-1444.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.

Með reglugerð þessari fellur úr gildi 1. gr. h reglugerðar nr. 593/1993 um málsmeðferð og valdsvið eftirlitsstofnunar EFTA á sviði samkeppni samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. reglugerð nr. 652/2005.

Viðskiptaráðuneytinu, 18. september 2006.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Jónína S. Lárusdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.