Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1223/98 frá 4. júní 1998 um breytingu á reglugerð (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja og reglugerð (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71 skal gilda á Íslandi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 33/1999 frá 26. mars 1999 um breytingu á VI. viðauka (Félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
Reglugerðin (EB) nr. 1223/98 fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá félagsmálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um atvinnuleysistryggingar og greiðslur í fæðingarorlofi samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Í reglugerð fjármálaráðuneytisins er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.
Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1223/98 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 33/1999, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 46, bls. 78-94, er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.