Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

804/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 183/2020 um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir.

1. gr.

3. málsl. 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Við mat á beiðni um þinglýsingu skuldbindinga á almenna íbúð skal miðað við að fjárhæð slíkra skuldbindinga fari að jafnaði ekki yfir það hlutfall sem lánsfjármögnun átti að nema af áætluðu stofnvirði íbúðar samkvæmt samþykktri umsókn um stofnframlag, þó að teknu tilliti til breytinga sem orðið hafa á fjárhæðum hámarksbyggingarkostnaðar frá samþykki umsóknar.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 9. mgr. 16. gr. laga um almennar íbúðir nr. 52/2016, tekur þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 24. júlí 2020.

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.