Utanríkisráðuneyti

796/2017

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Alþýðulýðveldið Kóreu nr. 160/2015, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast í réttri númeraröð við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunar­aðgerðir varðandi Alþýðulýðveldið Kóreu nr. 160/2015:

1. Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/849 frá 27. maí 2016 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðu­lýðveldinu Kóreu og niðurfellingu ákvörðunar 2013/183/SSUÖ, sbr. fylgiskjal 1.
  1.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1341 frá 4. ágúst 2016 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2016/849 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 1.1.
  1.2 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/2217 frá 8. desember 2016 um breytingu á ákvörðun 2016/849/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 1.2.
  1.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/82 frá 16. janúar 2017 um breytingu á ákvörðun 2016/849/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 1.3.
  1.4 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/345 frá 27. febrúar 2017 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2016/849 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal nr. 1.4.
  1.5 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/666 frá 6. apríl 2017 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2016/849 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, fylgiskjal 1.5.  
  1.6 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/667 frá 6. apríl 2017 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2016/849 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, fylgiskjal 1.6.  
  1.7 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/975 frá 8. júní 2017 um framkvæmd ákvörð­unar (SSUÖ) 2016/849 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, fylgi­skjal 1.7.  
  1.8 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/994 frá 12. júní 2017 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2016/849 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, fylgiskjal 1.8.  
  2.15 Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/682 frá 29. apríl 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 2.15.
  2.16 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/780 frá 19. maí 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðu­lýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 2.16.
  2.17 Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/841 frá 27. maí 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 2.17.
  2.18 Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/1333 frá 4. ágúst 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 2.18.
  2.19 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1831 frá 14. október 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðu­lýðveld­inu Kóreu, sbr. fylgiskjal 2.19.
  2.20 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2215 frá 8. desember 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðu­lýðveld­inu Kóreu, sbr. fylgiskjal 2.20.
  2.21 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/80 frá 16. janúar 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðu­lýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 2.21.
  2.22 Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/330 frá 27. febrúar 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 2.22.
  2.23 Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/658 frá 6. apríl 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, fylgiskjal 2.23.  
  2.24 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/661 frá 6. apríl 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, fylgiskjal 2.24.
  2.25 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/970 frá 8. júní 2017 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðu­­lýðveld­inu Kóreu, fylgiskjal 2.25.  
  2.26 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/993 frá 12. júní 2017 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðu­­lýðveldinu Kóreu, fylgiskjal 2.26.

Eftirfarandi töluliðir í sömu grein skulu falla niður: 1 og 1.1-1.7.

2. gr.

Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins.

Á eftir 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar bætist við ný málsgrein, sem verður 3. mgr., og hljóðar svo:

Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í framangreindum gerðum, er birtur með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB frá 6. maí 2009 um að einfalda skilmála og skilyrði vegna tilflutnings varnartengdra vara innan Bandalagsins (EES-viðbætir nr. 56, 10. október 2013, bls. 801-836), ásamt síðari breytingum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 111/2013, 14. júní 2013, og nefnist þar "Skrá yfir varnartengdar vörur". Til­skip­unin er innleidd með reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðar­lega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum.

Þriðja málsgrein 2. gr. verður 4. mgr.

3. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 24. ágúst 2017.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Helga Hauksdóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica