Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 29. maí 2021

791/2015

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 896/2012 um hvaða flugrekendur heyra undir umsjón Íslands í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

1. gr.

Við 1. mgr. 4. gr. bætist einn nýr stafliður, f-liður, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2015/180 frá 9. febrúar 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem getið er í viðauka I við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB frá 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint, sem vísað er til í tölulið 21as, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 169/2015 frá 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 46 frá 20. ágúst 2015, bls. 246-435.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 2015/180 frá 9. febrúar 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem getið er í viðauka I við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB frá 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 4. mgr. 16. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 24. ágúst 2015.

F. h. r.

Hugi Ólafsson.

Kjartan Ingvarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.