Fara beint í efnið

Prentað þann 23. apríl 2024

Breytingareglugerð

784/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð um för yfir landamæri, nr. 866/2017.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: e. geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, bæði meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til þess að snúa aftur til upprunalands síns eða til gegnumferðar til þriðja lands, sem víst þykir að þeim verði hleypt inn í, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt.
  2. Orðin "skv. 1. mgr." í 2. mgr. 5. gr. falla brott.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 80/2016 um útlendinga, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 14. júní 2022.

Jón Gunnarsson.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.