Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

781/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr. Gildissvið.

2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Reglugerð þessi gildir um starfrækslu flugvéla, þyrlna, loftbelgja og svifflugna, þ.m.t. skoðanir á hlaði á loftförum flugrekenda sem eru undir öryggiseftirliti annars ríkis þegar þau lenda á flugvelli á Íslandi.

Í reglugerðinni er mælt fyrir um skilyrði fyrir því að gefa út, viðhalda, breyta, takmarka, fella tímabundið úr gildi eða afturkalla skírteini flugrekenda, sem stunda flutningaflug, sem nota loftför sem talin eru upp í b- og c-lið 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 216/2008, um réttindi og ábyrgð handhafa skírteina sem og um skilyrði fyrir því að starfræksla skuli bönnuð, takmörkuð eða háð tilteknum skilyrðum í öryggisskyni.

Í reglugerðinni er einnig kveðið á um ítarlegar reglur um skilyrði og verklagsreglur að því er varðar yfirlýsingu frá flugrekendum sem stunda sérstaka starfrækslu (verkflug) í ábataskyni og starfrækslu flókinna, vélknúinna loftfara, sem er ekki í ábataskyni, þ.m.t. sérstök starfræksla flókinna vélknúinna loftfara, sem er ekki í ábataskyni, og eftirlit með þeim.

Í reglugerðinni er einnig mælt fyrir um ítarlegur reglur varðandi það hvaða skilyrði tiltekin áhættusöm, sérstök starfræksla (verkflug) í ábataskyni skuli háð leyfi í öryggisskyni og skilyrðin fyrir útgáfu, viðhaldi, breytingu, takmörkun, tímabundinni niðurfellingu eða afturköllun þessara leyfa.

Reglugerð þessi á ekki við um flugrekstur sem fellur undir gildissvið a-liðar 2. mgr. 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 216/2008.

Reglugerð þessi gildir ekki um starfrækslu með tjóðruðum loftbelgjum og loftskipum og flug með tjóðruðum loftbelgjum.

2. gr. Innleiðing.

Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Reglugerð (ESB) nr. 379/2014 frá 7. apríl 2014 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 289 frá 12. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, 5. febrúar 2014, bls. 611.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 1. mgr. 31. gr., 4. mgr. 37. gr., 80. gr. og 85. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Ákvæði II., III., VII. og VIII. viðauka varðandi verkflug (specialised operations), koma ekki til framkvæmda fyrr en 21. apríl 2017.

Ákvæði II., III. og IV. viðauka varðandi flutningaflug (CAT operations) sem byrja og enda á sama stað þar sem notast er við flugvélar í afkastaflokki B eða einfaldar þyrlur, koma ekki til framkvæmda fyrr en 21. apríl 2017.

Ákvæði II. og III. viðauka varðandi flutningaflug (CAT operations) loftbelgja og svifflugna koma ekki til framkvæmda fyrr en 21. apríl 2017.

Við gildistöku ákvæða II., III., VII. og VIII. viðauka varðandi verkflug þann 21. apríl 2017, fellur úr gildi reglugerð um verkflug í atvinnuskyni nr. 97/2009.

Innanríkisráðuneytinu, 20. ágúst 2015.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.