Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

768/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.

1. gr.

Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætast nýir stafliðir, svohljóðandi:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 165/2014 frá 4. febrúar 2014 um ökurita í flutningum á vegum, niðurfellingu reglugerðar ráðsins (EBE) nr. 3821/85 um að taka upp skráningarbúnað í ökutækjum í flutningum á vegum og breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 561/2006 um samhæfingu tiltekinna ákvæða félagsmálalöggjafarinnar er varða flutninga á vegum, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2016 frá 3. júní 2016, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52, frá 22. september 2016, bls. 594-626.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/68 frá 21. janúar 2016 um sameiginlegar verklagsreglur og forskriftir sem nauðsynlegar eru fyrir samtengingu rafrænna skráa yfir ökumannskort, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2016 frá 23. september 2016, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, frá 13. október 2016, bls. 989-1006.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/799 frá 18. mars 2016 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 165/2014 þar sem mælt er fyrir um kröfur um smíði, prófun, uppsetningu, virkni og viðgerðir ökurita og íhluta þeirra, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 211/2016 frá 28. október 2016, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31, frá 18. maí 2017, bls. 1027-1532.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/548 frá 23. mars 2017 um staðlað eyðublað fyrir skriflega yfirlýsingu um að innsigli ökurita hafi verið fjarlægt eða rofið, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2017 frá 7. júlí 2017, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48, frá 3. ágúst 2017, bls. 962-964.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 1. mgr. 44. gr. a, 1. mgr. 60. gr. og 1. mgr. 67. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 17. ágúst 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.