Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. sept. 2022

765/2020

Reglugerð um veiðar á ígulkerum.

1. gr. Almennt um veiðar á ígulkerum.

Allar veiðar á ígulkerum í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar, nema skipum sem hafa aflamark í ígulkerum, sbr. ákvæði laga um stjórn fiskveiða.

2. gr. Svæðaskipting veiða á ígulkerum.

Skipum sem hafa aflamark í ígulkerum er heimilt að veiða ígulker á þeim tilteknu svæðum sem aflamarkið er bundið við:

Svæði A Svæði B Svæði C
65°30,00 N - 24°30,00 V
65°35,00 N - 23°30,00 V
65°40,00 N - 21°45,00 V
65°13,00 N - 21°35,00 V
65°13,00 N - 22°40,00 V
64°53,12 N - 22°40,00 V
64°53,12 N - 24°02,45 V
65°13,00 N - 22°40,00 V
65°13,00 N - 22°31,00 V
65°08,00 N - 22°31,00 V
65°04,00 N - 22°25,00 V
65°00,00 N - 22°40,00 V
Hvammsfjörður innan línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:
65°08,00 N - 22°31,00 V
65°04,00 N - 22°25,00 V

3. gr. Tilraunaveiðileyfi.

Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. er ráðherra heimilt að veita tímabundin leyfi til tilraunaveiða á ígulkerum utan veiðisvæða sem skilgreind eru í 2. gr. í samræmi við 13. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Í umsókn um tilraunaveiðar skal umsækjandi tilgreina meðal annars heiti skips, veiðitímabil og á hvaða svæði hann hyggst veiða. Leyfi til tilraunaveiða eru veitt að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna. Sama skip getur einungis haft eitt virkt tilraunaveiðileyfi til að veiða ígulker og skal gildistími þess ekki vera lengri en þrír mánuðir. Sé sótt um nýtt tilraunaveiðileyfi fellur hið fyrra úr gildi við útgáfu þess nýja.

Heimilt er að binda leyfi til tilraunaveiða tilteknum skilyrðum, svo sem um hámarksafla, eftirlit Hafrannsóknastofnunar eða Fiskistofu með veiðunum, gerð plógs, greiningu afla og skýrsluskil til Hafrannsóknastofnunar.

Ráðherra er heimilt að afturkalla tímabundið leyfi til tilraunaveiða sé ekki farið að skilyrðum leyfisins.

4. gr. Veiðarfæri.

Aðeins er heimilt að veiða ígulker með einum plógi á hverjum báti samtímis og skal breidd plógs ekki vera meiri en 2,5 m og hámarksþyngd 700 kg. Aðeins er heimilt að veiða með einum plógi á hverjum báti samtímis.

Möskvastærð í poka má ekki vera minni en 80 mm (innanmál).

Ekki er heimilt að landa ígulkerum sem eru undir 45 mm í þvermál. Veiðist ígulker undir þeim stærðarmörkum skal sleppa þeim aftur.

Ekki er heimilt að veiða á fleiri en einu veiðisvæði í hverri veiðiferð.

5. gr. Vigtun.

Við vigtun og skráningu á ígulkerum gilda ákvæði reglugerðar nr. 745/2016, um vigtun og skráningu sjávarafla. Skipstjóri skal gefa upp veiðisvæði, sbr. 2. gr. við vigtun afla á hafnarvog.

6. gr. Stjórnsýsluviðurlög.

Fiskistofu er heimilt að svipta skip leyfi til veiða í atvinnuskyni vegna brota á ákvæðum laga og reglugerða, sem lúta að stjórn veiða og nýtingu nytjastofna, sbr. lög nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lög nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

7. gr. Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, IV. kafla laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.

8. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er gefin út með stoð í lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðarinnar fellur úr gildi reglugerð nr. 742/2019 um veiðar á ígulkerum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.