Sjávarútvegsráðuneyti

765/2004

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Rifsbanka án smáfiskaskilju. - Brottfallin

1. gr.

Veiðar með fiskibotnvörpu á svæði á Rifsbanka eru því aðeins heimilar að varpan sé búin smáfiskaskilju í samræmi við viðauka við reglugerð nr. 278, 4. apríl 2001, um gerð og búnað smáfiskaskilju með síðari breytingum. Svæði þetta markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 67° 12´00 N – 16° 05´00 V
2. 67° 16´00 N – 15° 17´00 V
3. 67° 03´00 N – 14° 23´00 V
4. 66° 58´00 N – 14° 37´00 V
5. 66° 52´00 N – 15° 50´00 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 21. september 2004 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 761, 17. september 2004, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Rifsbanka án smáfiskaskilju.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 20. september 2004.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica