Prentað þann 28. mars 2024
762/2012
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 535/2001 um köfun.
1. gr.
Við 1. mgr. 12. gr. bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
f) | F-skírteini, sem heimilar leiðsögu- og yfirborðsköfun með ferðamenn til þeirra sem hafa réttindi sem PADI Divemaster, eða sambærileg réttindi frá viðurkenndum alþjóðlegum köfunarsamtökum. | |
g) | G-skírteini, önnur köfun. |
2. gr.
Við 2. mgr. 14. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þegar mál eru tekin fyrir er varða kennsluréttindi til áhugaköfunar, leiðsögu- og yfirborðsköfunar með ferðamenn ásamt málefnum er varða köfunarskóla og fyrirtæki í ferðatengdri köfunarþjónustu skal prófanefnd kalla til ráðgjafar fulltrúa kafara með kennsluréttindi frá viðurkenndum alþjóðlegum köfunarsamtökum.
3. gr.
Þessi reglugerð er sett samkvæmt lögum nr. 31/1996, um köfun, og öðlast gildi 1. nóvember 2012.
Innanríkisráðuneytinu, 3. september 2012.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.