Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

730/2017

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 608/2008 um Vatnajökulsþjóðgarð. - Brottfallin

1. gr.

1. tölul. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Dregin er lína úr punkti í jaðri Austurtungnajökuls þar sem Lambatungnaá rennur undan jökli, eftir jökuljaðri að punkti í Goðaborg með hnit A671864 m, N450243 m, þaðan í beina línu í Geita­fells­tind, hnit A676229 m, N444143 m, og áfram eftir beinni línu í jökulsporð neðst í Hoffells­jökli, hnit A673332 m, N440320 m og þaðan áfram eftir jökuljaðri að austanverðum landa­merkjum Flateyjar á Mýrum þar sem þau koma í jökuljaðar. Þaðan eftir landamerkjunum að punkti 200 m ofan raflínu sem liggur þvert yfir land Flateyjar. Þaðan meðfram raflínunni, 200 m ofan hennar, að landamerkjum Flateyjar og Skálafells. Þaðan í Hánípu og síðan eftir línu sem dregin er milli Hánípu og Snjófells að jökuljaðri. Eftir jökuljaðri að Kolgrímu og eftir vesturbakka Kolgrímu að punkti M (hnit A661187 m, N421142 m). Þó skulu þjóðgarðsmörk dregin 100 m norðan námu sem er yst á Hjallanesi neðst við Kolgrímu þannig að náman verði utan þjóðgarðsmarka. Frá punkti M upp að klettum ofan hjalla er fylgja neðsta klettabelti að Kistugili (lína sem dregin er milli eftirfarandi hnitpunkta: A660861 m, N421038 m; A660607 m, N420765 m; A660537 m, N420949 m). Þaðan upp með Kistugili að austanverðu að punkti N (hnit A660542 m, N420933 m) og þaðan í vörðu í punkti O (hnit A660508 m, N421238 m) að vörðu í punkti P (hnit A660012 m, N421441 m) við fjallshlíðina. Þaðan beina línu að jökuljaðri gegnum punkt R (hnit A659813 m, N422084 m). Þaðan eftir jökuljaðri að punkti í Fellsárjökli (hnit A639657, N410468) með Fellsá að Fellsfossi (hnit A641159, N406914) og þaðan bein lína til sjávar um Hrollaugsaur (hnit A643576, N402299). Meðfram ströndinni í vesturátt að punkti (hnit A631684, N390291) á Breiðamerkurfjöru rétt austan við Breiðárós og þaðan bein lína austan Fjallsár í jökul í Fjallsárlóni (hnit A627105, N393970), meðfram jaðri Fjallsjökuls að punkti (hnit A625006, N391770) í sunnanverðum Hrútárjökli. Þaðan eftir jökuljaðri að landamerkjum Svínafells og Skaftafells II í jaðri Svínafellsjökuls, þaðan eftir framlengdri þeirri landamerkjalínu á Svínafellsjökli að skurðpunkti við stefnulínu sem dregin er úr merki við Gömlutún og um fremstu nöf Hafrafells, þaðan eftir þeirri línu um fremstu nöf Hafrafells og í merkið við Gömlutún, þaðan að mörkum Austur- og Vestur-Skaftafellssýslna á Skeiðarársandi við þjóðveg 1. Þaðan er dregin lína í norður eftir sýslumörkum í jaðar Skeiðarárjökuls, þaðan eftir jökuljaðri að skurðpunkti línu að punkti 1 (hnit A547164 m, N407083 m) í jökuljaðri, þaðan að punkti 2 (hnit A546329 m, N405705 m) sunnan Fljótsodda, þaðan eftir punktaröð 3 til 20, suðaustur, suður og vestur fyrir Innri-Eyrar í punkt 20 (hnit A540777 m, N396544 m) austan Blængs. Þaðan í hæsta topp Varmárfells, punktur 21 (hnit A538705 m, N393125 m). Þaðan í hátopp Hnútu, punktur 22 (hnit A528737 m, N387484 m), þaðan í Innra-Grjótárhöfuð, punktur 23 (hnit A522619 m, N383196 m), sunnan Skaftár. Þaðan í punkt 24 (hnit A519347 m, N381663 m). Þaðan í punkt 25 (hnit A517764 m, N381660 m) við veginn um Fjallabaksleið nyrðri, um 1 km sunnan Eldgjár. Þaðan eftir punktalínu 26 til 37, 500 metra vestan Fjallabaksleiðar nyrðri að Landmannalaugum, F 208. Þaðan frá punkti 37 (hnit A511443 m, N385844 m) við vegamót á slóða í Faxasund, um hápunkt Breiðbaks, punktur 38 (hnit A531513 m, N409494 m), þaðan í hnit A540539 m, N420228 m í jökuljaðri Tungnaárjökuls að sveitarfélagamörkum Skaftárhrepps og Ásahrepps þar sem Tungnaá rennur undan Tungnaárjökli. Eftir Tungnaá í punkt A (hnit A537750 m, N423116 m) austan Jökulheima. Þaðan beina línu í punkt B (hnit A523446 m, N416683 m) sem er á 815 m háum kolli syðst í Ljósufjöllum. Þaðan beina línu í punkt C (hnit A519371 m, N415861 m) sem er á sveitarfélagamörkum Ásahrepps og Rangárþings ytra milli Svartakambs og Þveröldu. Þaðan beina línu í Þveröldu við Austurbotn Þórisvatns, þaðan í sömu stefnu í punkt D (hnit A511087 m, N424643 m). Þaðan beina línu í Hvannagil (hnit A518743 m, N431517 m). Eftir Hvannagili og síðan Köldukvísl að punkti E (hnit A537575 m, N447537 m) sem er sunnan Syðri-Hágöngu. Þaðan beina línu að Hraunbúa (hnit A541737 m, N443929 m), þá til austurs í punkt F (hnit A545382 m, N448350 m) og þaðan beina línu í Skerðing (hnit A546539 m, N455644 m), Krosshnjúka (hnit A544529 m, N461447 m) og Fjórðungakvísl (hnit A541782 m, N474087 m). Þaðan í punkt G (hnit A543077 m, N476013 m) og eftir línu sem dregin er úr punkti G milli eftirfarandi punkta: H (hnit A544473 m, N476816 m), I (hnit A544528 m, N476661 m), J (hnit A545448 m, N475961 m) og K (hnit A546621 m, N475790 m). Þaðan eftir vegslóð norðan Tungnafellsjökuls og austur Dyngju­fjalla­leið (hnit birt í töflu 1, í viðauka 4) að punkti L (hnit A582902 m, N504084 m) á sveitarfélaga­mörkum Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps. Þaðan beina línu í norður eftir sveitar­félaga­mörkunum að þjóðlendulínu (hnit A583290 m, N533119 m), sbr. úrskurð óbyggðanefndar frá 6. júní 2008 í máli nr. 1/2007. Þaðan í norðnorðaustur í punkt sunnan Suðurárbotna (hnit A584084 m, N536263 m), en frá honum í suðaustur að upptökum Suðurár (hnit A589424, m, N532285, m). Þaðan til austurs í punkt (hnit A599832 m, N532285 m), þar sem Bláfjallshalar eru í hánorður. Úr þeim punkti er farið beint í norður að suðurenda Bláfjallshala (hnit A599832 m, N543511 m). Þaðan beina línu suðaustur í 860 m hæðarpunkt (hnit A614242 m, N520630 m) suður af Bræðrafelli við Kollóttudyngju, þaðan beina línu norður fyrir rætur Herðubreiðar­tagla (hnit A623529 m, N519569 m). Þaðan beina línu í miðja Jökulsá á Fjöllum norðan Hlaupfells (hnit A631409 m, N515719 m). Þaðan til norðurs eftir miðju árinnar, á sveitarfélaga­mörkum Skútustaðahrepps og Fljótsdalshéraðs, að Árkrossi þar sem Kreppa fellur í Jökulsá á fjöllum (A630946, N522956). Þaðan til suðurs eftir meginkvísl Kreppu austan Lónshnjúks að ármótum við Kverká og síðan eftir Kverká að Brúarjökli (A637496, N478888). Þaðan eftir jökuljaðri að austurmörkum friðlandsins í Kringilsárrana, sbr. auglýsingu nr. 181/2003, þar sem Jökulkvísl rennur undan jökli. Þaðan eftir austurmörkum friðlandsins að punkti S (hnit A650403 m, N477828 m) austan Hálslóns. Þaðan eftir línu sem liggur 1 km frá og meðfram austurbakka Hálslóns (625 m hæðarlína) að Kárahnjúkavegi, þaðan í austur eftir línu sem liggur 200 m sunnan við og meðfram Kárahnjúkavegi að Hraunaveituvegi vestan Jökulsár í Fljótsdal. Þaðan eftir línu sem liggur 200 m vestan við og meðfram Hraunaveituvegi og vegslóða að Eyjabakkavaði. Þaðan beina línu í punkt (hnit A671027 m, N477861 m) 1 km sunnan við Kelduárlón og þaðan beina línu í Háukletta. Úr Háuklettum beina línu í Marköldu um innsta Geldingarfell eftir sýslumörkum Múlasýslu og Austur-Skaftafellssýslu í upphafspunkt í jökuljaðri. Ærfjall að jökuljaðri umhverfis fjallið telst ekki innan marka þjóðgarðsins.

3. gr.

1. mgr. 26. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Hefðbundin landnýting svo sem búfjárbeit, fuglaveiði, hreindýraveiði, veiði í ám og vötnum og nýting reka, er rétthöfum heimil á þeim svæðum sem afmörkuð eru í viðauka III enda séu uppfyllt ákvæði þeirra laga sem um nýtinguna fjalla. Annars staðar í þjóðgarðinum er slík nýting óheimil.

3. gr.

Í stað korts í viðauka 1 "Mörk þjóðgarðs" kemur kort sem birt er í viðauka 1 við reglugerð þessa.

4. gr.

Í stað korts í viðauka 2 "Mörk rekstrarsvæða" kemur kort sem birt er í viðauka 2 við reglugerð þessa.

5. gr.

Í stað korts í viðauka 3 "Svæði þar sem hefðbundin landnýting er heimil, sbr. 26. gr." kemur kort sem birt er í viðauka 3 við reglugerð þessa.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 7., 15. og 20. gr. laga nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð og tekur þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 25. júlí 2017.

Björt Ólafsdóttir.

Jón Geir Pétursson.

VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica