Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

717/2016

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 214/2010, um humarveiðar. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

Felld brott með:

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki humars frá fiskveiðiárinu 2015/2016 yfir á fiskveiðiárið 2016/2017.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. ágúst 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica