Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

715/2022

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 581/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 5. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/363 frá 2. mars 2022 um breytingu og leiðréttingu á IX. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar skrárnar yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tilteknar lagarafurðir til Sambandsins.

2. gr.

Ofangreind framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lög nr. 71/2008, um fiskeldi. Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 20. maí 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.