FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) 2022/478 frá 24. mars 2022 um að viðhalda verndarráðstöfunum varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til manneldis
FRAMKVÆMDASTJÓRN EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins,
með hliðsjón af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 frá 15. mars 2017 um opinbert eftirlit og aðra opinbera starfsemi sem miðar að því að tryggja að lögum um matvæli og fóður og reglum um heilbrigði og velferð dýra, plöntuheilbrigði og plöntuverndarvörur sé beitt og um breytingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001, (EB) nr. 396/2005, (EB) nr. 1069/2009, (EB) nr. 1107/2009, (ESB) nr. 1151/2012, (ESB) nr. 652/2014, (ESB) 2016/429 og (ESB) 2016/2031, reglugerðum ráðsins (EB) nr. 1/2005 og (EB) nr. 1099/2009 og tilskipunum ráðsins 98/58/EB, 1999/74/EB, 2007/43/EB, 2008/119/EB og 2008/120/EB og um niðurfellingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 854/2004 og (EB) nr. 882/2004, tilskipunum ráðsins 89/608/EBE, 89/662/EBE, 90/425/EBE, 91/496/EBE, 96/23/EB, 96/93/EB og 97/78/EB og ákvörðun ráðsins
92/438/EBE (reglugerð um opinbert eftirlit) (1), einkum 1. mgr. 128. gr.,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 743/2013 (2) var samþykkt þegar í ljós komu, við úttekt endurskoðunarþjónustu framkvæmdastjórnarinnar, annmarkar hjá lögbærum yfirvöldum í Tyrklandi á framkvæmd opinbera eftirlitsins með framleiðslu á samlokum sem eru ætlaðar til innflutnings inn í Sambandið og þar eð aðildarríki tilkynntu um sendingar af samlokum, sem voru upprunnar í Tyrklandi og voru ekki í samræmi við tilskilin ákvæði, sem uppfylltu ekki örverufræðilega staðla Sambandsins.
2) Við síðustu úttekt endurskoðunarþjónustu framkvæmdastjórnarinnar, sem fór fram í september 2015, kom í ljós að enn eru fyrir hendi verulegir annmarkar í eftirlitskerfi með samlokum sem eru ætlaðar til innflutnings inn í Sambandið.
3) Í janúar 2020 lögðu tyrknesk lögbær yfirvöld fram upplýsingar varðandi ráðstafanir til úrbóta sem gripið var til í því skyni að taka á þessum annmörkum. Þó að þetta hafi upphaflega fengið hagstætt skriflegt mat hefur enn ekki verið unnt að framkvæma úttekt á vettvangi til að sannreyna framkvæmd þessara aðgerða vegna takmarkana vegna COVID-19-heimsfaraldursins. Þar til niðurstöður úr þessari úttekt teljast hagstæðar ætti að halda ráðstöfununum sem komið var á með framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 743/2013.
4) Framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 743/2013 féll úr gildi 31. desember 2021. Þar eð tilskipun ráðsins 97/78/EB (3), sem er grundvöllur framangreindrar reglugerðar, gildir ekki lengur ætti auk þess að uppfæra lagagrundvöll framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar þannig að vísað sé til 128. gr. reglugerðar (ESB) 2017/625.
5) Ráðstafanirnar, sem kveðið er á um í þessari reglugerð, eru í samræmi við álit fastanefndarinnar um plöntur, dýr, matvæli og fóður.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Efni
Þessi reglugerð gildir um lifandi, kældar, frystar og unnar samlokur sem eru ætlaðar til manneldis (SN-númer: 0307, 1605) og eru upprunnar í eða sendar frá Tyrklandi.
2. gr.
Bann við innflutningi á lifandi og kældum samlokum
Aðildarríkin skulu ekki leyfa innflutning á lifandi og kældum samlokum, sem eru upprunnar í eða sendar frá Tyrklandi, inn í Sambandið.
3. gr.
Ráðstafanir að því er varðar frystar og unnar samlokur
1. Aðildarríkin skulu, með því að nota viðeigandi sýnatökuáætlanir og greiningaraðferðir, framkvæma prófanir á sendingum af frystum og unnum samlokum, sem eru upprunnar í eða sendar frá Tyrklandi, eins og kveðið er á um í 2. mgr. Þessar prófanir skulu fara fram á landamæraeftirlitsstöðinni þar sem viðkomandi sendingar koma inn í Sambandið
2. Aðildarríkin skulu framkvæma þær prófanir sem eru nauðsynlegar til að greina:
a) mengun af völdum Escherichia coli í öllum sendingum af frystum samlokum,
b) sjávarlífeitur í öllum sendingum af frystum eða unnum samlokum.
3. Sendingarnar sem eru settar í prófanirnar sem um getur í 1. og 2. mgr. skulu vera áfram undir eftirliti lögbærra yfirvalda á viðkomandi landamæraeftirlitsstöð þangað til niðurstöður úr þeim prófunum hafa borist og verið metnar.
4. Ef prófanirnar sem um getur í 1. og 2. mgr. sýna fram á að líklegt sé að sending sé skaðleg heilbrigði manna skal lögbært yfirvald tafarlaust leggja hald á sendinguna og annaðhvort eyða henni eða láta hana sæta sérstakri meðhöndlun eins og kveðið er á um í 67. gr. reglugerðar (ESB) 2017/625 og í samræmi við 1. og 2. mgr. 71. gr. þeirrar reglugerðar.
4. gr.
Útgjöld
Öll útgjöld sem aðildarríkin stofna til við beitingu þessarar reglugerðar skulu gjaldfærð á rekstraraðila eða fulltrúa hans/hennar sem ber ábyrgð á sendingunni þegar henni er framvísað á landamæraeftirlitsstöð við komu inn í Sambandið.
5. gr.
Gildistaka og gildistími
Reglugerð þessi öðlast gildi á fjórða degi eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Hún gildir til 31. desember 2023.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 24. mars 2022.
Fyrir hönd framkvæmdastjórnarinnar,
Ursula von der Leyen forseti
(1) Stjtíð. ESB L 95, 7.4.2017, bls. 1.
(2) Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 743/2013 frá 31. júlí 2013 um verndarráðstafanir varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til manneldis (Stjtíð. ESB L 205, 1.8.2013, bls. 1).
(3) Tilskipun ráðsins 97/78/EB frá 18. desember 1997 um meginreglur um skipulag dýraheilbrigðiseftirlits með afurðum sem fluttar eru inn til Bandalagsins frá þriðju löndum (Stjtíð. EB L 24, 30.1.1998, bls. 9).