Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

683/2017

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði í Aðalvík. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 26. júlí 2017 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði í Aðalvík, á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1.   66°21,00′ N - 23°03,00′ V
2.   66°21,00′ N - 23°15,00′ V
3.   66°25,80′ N - 23°15,00′ V
4.   66°25,80′ N - 23°03,00′ V
5.   66°21,00′ N - 23°03,00′ V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. júlí 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Baldur P. Erlingsson.

Sigríður Norðmann.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica