Utanríkisráðuneyti

679/2018

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014:

  1.7 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/333 frá 5. mars 2018 um breytingu á ákvörðun 2014/119/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrar­einingum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.7.
  2.7 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/326 frá 5. mars 2018 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) nr. 208/2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.7.
  3.22 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2163 frá 20. nóvember 2017 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.22.
  3.23 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/392 frá 12. mars 2018 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.23.
  3.24 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/706 frá 14. maí 2018 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.24.
  4.26 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/2153 frá 20. nóvember 2017 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.26.
  4.27 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/388 frá 12. mars 2018 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.27.
  4.28 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/705 frá 14. maí 2018 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.28.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 21. júní 2018.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica