Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

669/2012

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "vottuð af héraðsdýralækni" kemur: vottuð af dýralækni á þar til gerðu eyðublaði.
  2. Í stað "vottorði héraðsdýralæknis" kemur: vottorði dýralæknis.

2. gr.

8. gr. reglugerðarinnar fellur niður og breytist númeraröð annarra greina í samræmi við það.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 11. júlí 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.