Mennta- og menningarmálaráðuneyti

669/2010

Reglugerð um störf og starfshætti undanþágunefndar framhaldsskóla. - Brottfallin

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til starfa og starfshátta undanþágunefndar framhaldsskóla. Starfssvið nefndarinnar tekur til framhaldsskóla hvort sem þeir eru reknir af ríki eða á grundvelli viðurkenningar mennta- og menningarmálaráðherra, sbr. 12. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla.

2. gr.

Hlutverk.

Undanþágunefnd framhaldsskóla metur umsóknir skólameistara um heimild til þess að lausráða til kennslu- og stjórnunarstarfa starfsmann sem ekki hefur leyfi mennta- og menningarmálaráðherra til að nota starfsheitið framhaldsskólakennari.

Undanþágunefnd ákveður hvort umbeðin heimild skuli veitt eða henni synjað. Heimild sem veitt er á grundvelli c-liðar 5. gr. reglugerðar þessarar er bundin því skilyrði að viðkomandi starfsmaður hafi sérmenntun í auglýstri kennslugrein. Nefndin getur ein­vörðungu heimilað lausráðningu til kennslustarfa til bráðabirgða og aldrei lengur en til eins árs að fullnægðum þeim skilyrðum sem sett eru í reglugerð þessari.

3. gr.

Skipun.

Mennta- og menningarmálaráðherra skipar undanþágunefnd framhaldsskóla til fjögurra ára í senn. Nefndin skal skipuð þremur fulltrúum, einum fulltrúa tilnefndum af heildarsamtökum kennara, einum fulltrúa tilnefndum af Félagi íslenskra framhaldsskóla og einum fulltrúa án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Jafnmarga varamenn skal skipa á sama hátt.

4. gr.

Umsóknir.

Umsókn til undanþágunefndar framhaldsskóla um heimild til að lausráða starfsmann án réttinda skal rituð á þar til gert eyðublað. Í umsókn skal tilgreina eftirfarandi:

  1. nákvæmar upplýsingar um það hvar og hvenær starfið var auglýst,
  2. heiti kennslugreina, starfshlutfall og vikulegur kennslutími,
  3. ráðningartímabil.

Með umsókn skulu fylgja eftirtalin gögn:

  1. ljósrit af auglýsingu,
  2. gögn um menntun, kennsluferil og starfsreynslu viðkomandi umsækjanda, ásamt umsögnum um starfshæfni hans,
  3. skrá yfir alla umsækjendur um viðkomandi starf með nöfnum, kennitölum og upplýsingum um fagmenntun og hvort þeir hafi leyfisbréf á framhaldsskólastigi. Óski skólameistari þess frekar getur hann sent nefndinni umsóknir umsækjenda,
  4. greinargerð skólameistara og skólanefndar um sjónarmið sem liggja til grund­vallar beiðni um undanþágu ef umsækjandi án réttinda er tekinn fram yfir umsækj­anda með leyfisbréf á framhaldsskólastigi.

Ef óskað er eftir endurráðningu starfsmanns sem er í kennsluréttindanámi skal fylgja staðfesting á náminu og áætlun um námsframvindu.

5. gr.

Skilyrði undanþágunefndar fyrir umfjöllun um umsóknir.

Skilyrði þess að undanþágunefnd fjalli um umsókn skólameistara eru:

  1. að laust kennslu- eða stjórnunarstarf í framhaldsskóla hafi verið auglýst í samræmi við 15. og 19. gr. laga nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Tilgreina skal í auglýsingum um hvaða kennslugreinar eða sérsvið er að ræða,
  2. að enginn framhaldsskólakennari í viðkomandi kennslugrein hafi sótt um auglýst kennslustarf þrátt fyrir endurtekna auglýsingu,
  3. að þrátt fyrir að framhaldsskólakennari hafi sótt um starfið geti hvorki skóla­meistari né að minnsta kosti tveir skólanefndarmenn mælt með ráðningu hans og skriflegur rökstuðningur þessara aðila fylgi með umsókninni,
  4. að upplýsingar og gögn skv. 4. gr. liggi fyrir eftir því sem við á.

6. gr.

Skilyrði vegna auglýsinga.

Undanþágunefnd kannar hvort skilyrðum um auglýsingu kennarastarfs, sbr. a- og b-lið 5. gr., sé fullnægt áður en nefndin tekur umsókn til efnislegrar umfjöllunar.

Telji nefndin að ekki hafi verið staðið rétt að auglýsingum ber henni að tilkynna það skóla­meistara formlega og leita skýringa. Ef skriflegar skýringar skólameistara reynast ekki fullnægjandi að mati nefndarinnar vísar hún umsókninni frá.

Skylda framhaldsskóla til auglýsingar á einnig við um lausráðningu starfsmanns til kennslu sem ekki hefur leyfisbréf framhaldsskólakennara skv. lögum nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Nefndinni er heimilt að víkja frá ákvæði um endurtekna auglýsingu ef um er að ræða endurráðningu starfsmanns sem er í kennsluréttindanámi, sbr. 3. málslið 19. gr. laga nr. 87/2008. Ekki er skylt að auglýsa kennslustörf þegar um er að ræða tímabundna forfallakennslu eða til afleysinga, enda sé um að ræða framhalds­skóla­kennara með tilskilda fagmenntun og starfinu ekki ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum.

7. gr.

Lausráðning án aðkomu undanþágunefndar.

Skólameistari þarf ekki að leita til undanþágunefndar þegar um er að ræða tímabundna ráðningu einstaklings með sérmenntun í viðkomandi kennslugrein til kennslu sem nemur 240 mínútum á viku eða minna, sbr. 13. gr. laga nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

8. gr.

Mat á umsóknum.

Ef skilyrði 5. gr. eru uppfyllt metur undanþágunefnd umsókn og úrskurðar hvort heimila skuli að lausráða starfsmann án kennsluréttinda til kennslu. Nefndinni ber að leggja mat á umsókn um lausráðningu starfsmanns á faglegum grunni og byggja mat sitt á málefnalegum sjónarmiðum sem eru til þess fallin að markmið laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og laga nr. 87/2008, um menntun og ráðningu kennara og skóla­stjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nái fram að ganga.

Nefndin skal taka mið af upplýsingum um menntun, kennsluferil og starfsreynslu umsækjanda og öðrum atriðum er fram koma í umsögn er snerta hæfi hans til starfans.

Starfsmaður sem ráðinn er á grundvelli heimildar undanþágunefndar skal ráðinn með sérstökum ráðningarsamningi til ákveðins tíma með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Slíkur starfsmaður má ekki bera starfsheitið framhaldsskólakennari og ekki má endurráða hann án undangenginnar auglýsingar.

9. gr.

Andmælaréttur kennara.

Áður en undanþágunefnd veitir heimild til undanþágu skal nefndin gefa framhalds­skóla­kennara kost á að tjá sig um framkomin gögn í máli þegar hvorki skólastjóri né að minnsta kosti tveir skólanefndarmenn treysta sér til að mæla með honum.

10. gr.

Afgreiðslufrestur.

Undanþágunefnd skal afgreiða beiðni eins fljótt og verða má, að jafnaði innan þriggja vikna frá því að umsókn barst henni í hendur. Ef mál er viðamikið og fyrirsjáanlegt að afgreiðsla taki lengri tíma skal nefndin tilkynna hlutaðeigandi það og tilgreina hvenær afgreiðslu sé að vænta.

11. gr.

Verklag.

Meirihluti atkvæða ræður niðurstöðu undanþágunefndar. Ákvörðun nefndarinnar skal vera skrifleg. Synji nefndin umsókn skal ákvörðunin rökstudd þar sem fram koma þau sjónarmið sem niðurstaðan byggist á.

Ákvarðanir nefndarinnar skulu birtar skólameistara svo fljótt sem auðið er og skulu skráðar í málaskrá nefndarinnar. Um varðveislu gagna undanþágunefndar fer samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985 og fyrirmælum settum samkvæmt þeim.

Nefndin skal árlega senda mennta- og menningarmálaráðherra, og þeim sem tilnefna fulltrúa í nefndina, skýrslu um starfsemi sína á liðnu skólaári og birta opinberlega.

12. gr.

Trúnaður.

Nefndarmönnum undanþágunefndar og starfsmönnum hennar er skylt að gæta þag­mælsku um einkamálefni sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara skv. lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi eða setu í nefndinni.

13. gr.

Málskot.

Skólameistari eða framhaldsskólakennari, sbr. 4. mgr. 19. gr. laga nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhalds­skóla getur skotið ákvörðun undanþágunefndar framhaldsskóla til mennta- og menningarmálaráðherra. Málskot frestar þó ekki réttaráhrifum ákvörðunar nefndarinnar.

Skólameistara er ekki heimilt að ráða starfsmann í þessu tilfelli fyrr en ráðherra hefur veitt undanþágu vegna hans.

14. gr.

Málsmeðferð.

Um málsmeðferð hjá undanþágunefnd fer að öðru leyti skv. stjórnsýslulögum nr. 37/1993.

15. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. heimild í 19. gr. laga nr. 87/2008 um menntun kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 699/1998 um undanþágunefnd framhaldsskóla.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 6. ágúst 2010.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica