Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 11. júlí 2020

655/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð um för yfir landamæri, nr. 866/2017.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Frá og með 1. júlí 2020 er útlendingum, sem hvorki eru EES- né EFTA-borgarar, óheimilt að koma til landsins óháð því hvort þeir uppfylli skilyrði 5. gr., auk annarra skilyrða sem fram koma í 106. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem hafa gilt dvalarleyfi eða annars konar dvalar- eða búseturétt hér á landi eða í öðru EES- eða EFTA-ríki. Ákvæðið á heldur ekki við um útlendinga sem koma til landsins vegna brýnna erindagjörða, þ. á m. eftirtalda aðila:

  1. Farþega í tengiflugi.
  2. Starfsfólk á sviði heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu.
  3. Starfsfólk sem sinnir flutningum á vöru og þjónustu.
  4. Einstaklinga sem hafa þörf fyrir alþjóðlega vernd.
  5. Einstaklinga sem þurfa að ferðast vegna brýnna aðstæðna í fjölskyldu sinni.
  6. Diplómata, starfsmenn alþjóðastofnana, meðlimi herliðs og starfsmenn sem sinna mannúðaraðstoð.
  7. Námsmenn.
  8. Einstaklinga sem þurfa nauðsynlega að ferðast vegna starfa sem teljast efnahagslega mikilvæg og störf þeirra geta ekki verið framkvæmd síðar eða erlendis.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 30. júní 2020.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.