Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

648/2005

Reglugerð um rétt lögmanna frá öðru EES-ríki til að veita tímabundna þjónustu hér á landi. - Brottfallin

1. gr.

Með lögmanni er í reglugerð þessari átt við þann sem er ríkisborgari í öðru EES-ríki og rétt hefur til að starfa undir einhverju eftirtalinna starfsheita:



í Austurríki Rechtsanwalt
í Belgíu Avocat/Advocaat/Rechtsanwalt
í Danmörku Advokat
í Eistlandi Vandeadvokaat
í Finnlandi Asianajaja/Advocat
í Frakklandi Avocat
í Grikklandi Dikhgoroq (Dikigoros)
í Hollandi Advocaat
á Írlandi Barrister/Solicitor
á Ítalíu Avvocato
á Kýpur Δικηgóroç
í Lettlandi Zverinats advokats
í Liechtenstein Rechtsanwalt
í Litháen Advokatas
í Luxembourg Avocat
á Möltu Avukat/Prokuratur Legali
í Noregi Advokat
í Portúgal Advogado
í Póllandi Adwokat/Radca prawny
í Slóveníu Odvetnik/Odvetnica
í Slóvakíu Advokát/Komercný právnik
á Spáni Abogado/Advocat/Avogado/Abokatu
í Stóra-Bretlandi Advocate/Barrister/Solicitor
í Sviss Avocat/Advokat, Rechtsanwalt, Anwalt,
Fürsprecher, Fürsprech/Avvocato
í Svíþjóð Advokat
í Tékklandi Adokát
í Ungverjalandi Ügyvéd
í Þýskalandi Rechtsanwalt


Með heimalandi er í reglugerð þessari átt við það EES-ríki þar sem lögmaðurinn hefur rétt til að starfa sem sérfræðingur undir einhverju þeirra starfsheita sem talin eru upp í 1. mgr.


2. gr.

Lögmaður sem hyggst starfa hér á landi samkvæmt reglugerð þessari skal tilkynna það dómsmálaráðuneytinu.


Tilkynningunni skulu fylgja gögn er sanna að hann hafi í heimalandi sínu rétt til að starfa undir einhverju af þeim starfsheitum sem greinir í 1. mgr. 1. gr. Einnig skal lögmaður sýna fram á að hann hafi í gildi starfsábyrgðartryggingu, annaðhvort tryggingu hjá vátryggingafélagi sem hefur starfsleyfi hér á landi eða ábyrgðartryggingu hjá vátryggingafélagi í heimalandi sínu sem veitir a.m.k. samsvarandi tryggingarvernd og sú ábyrgðartrygging sem íslenskum lögmönnum ber að hafa skv. reglugerð um starfsábyrgðartryggingar lögmanna. Lögmanni er ekki heimilt að veita þjónustu hér á landi fyrr en hann hefur lagt fram tilskilin gögn.


Dómsmálaráðuneytið tilkynnir Lögmannafélagi Íslands um þær tilkynningar sem berast skv. 1. mgr.


3. gr.

Lögmaður skal við störf sín hér á landi tilgreina á greinilegan hátt starfsheiti sitt í heimalandi sínu á opinberu tungumáli heimalandsins. Hann skal einnig tilgreina í hvaða fagfélagi hann er félagi í heimalandi sínu eða þann dómstól sem hann hefur rétt til að mæta fyrir samkvæmt lögum heimalands síns.


4. gr.

Lögmaður sem veitir þjónustu hér á landi samkvæmt reglugerð þessari getur gætt hagsmuna málsaðila fyrir dómstóli hér á landi sem svarar til dómstóls þess sem hann hefur réttindi fyrir í heimalandi sínu enda starfi hann í þinghöldum með lögmanni sem hefur öðlast lögmannsréttindi hér á landi og er þá ábyrgur gagnvart dómstólnum.


5. gr.

Lögmannafélag Íslands hefur eftirlit með þeim lögmönnum sem veita þjónustu hér á landi samkvæmt reglugerð þessari. Ber þeim að starfa í samræmi við siðareglur íslenskra lögmanna og lög um lögmenn að undanskildum skilyrðum um starfsstöð og aðild að Lögmannafélagi Íslands.


Um niðurfellingu heimildar EES-lögmanns til að veita þjónustu hér á landi gilda ákvæði 13.-17. gr. laga um lögmenn eftir því sem við á.


6. gr.

Úrskurðarnefnd lögmanna leysir úr ágreiningsmálum er varða störf lögmanna sem veita þjónustu hér á landi samkvæmt reglugerð þessari.


Lögmannafélag Íslands skal tilkynna dómsmálaráðuneytinu um ákvarðanir úrskurðarnefndar félagsins í kjölfar kvartana um störf lögmanna sem starfa hér á landi samkvæmt reglugerð þessari. Ráðuneytið skal tilkynna lögbæru yfirvaldi í heimalandi lögmannsins um slíkar ákvarðanir úrskurðarnefndarinnar.


7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 1. gr. laga um lögmenn nr. 77/1998, sbr. 1. gr. laga nr. 93/2004, til innleiðingar á tilskipun nr. 77/249/EB, sem vísað er til í 2. tl. VII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 625/1995 um rétt lögmanna frá öðru EES-ríki til að veita tímabundna þjónustu á Íslandi.





Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 16. júní 2005.


Björn Bjarnason.
Bryndís Helgadóttir.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica