Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 10. maí 2008

641/2006

Reglugerð um vörur sem heimilt er að selja í tollfrjálsum verslunum skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga nr. 88/2005.

1. gr.

Heimilt er að selja eftirtaldar vörur í tollfrjálsum verslunum skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005:

  1. Áfengi.
  2. Tóbak.
  3. Sælgæti.
  4. Ilmvötn og snyrtivörur úr kafla 33 og vörulið nr. 3401 í tollskrá.
  5. Geisladiska, segulbönd og aðra miðla með áteknu efni úr vörulið nr. 8524 í tollskrá, hvort sem er til endurskila á hljóði, mynd eða öðrum merkjum.
  6. Leikföng.
  7. Rafmagnstæki.
  8. Talstöðvar, þ.m.t. farsímar, úr vörulið nr. 8525 í tollskrá.
  9. Myndavélar úr vöruliðum nr. 9006 og 8525 í tollskrá.
  10. Filmur úr vöruliðum nr. 3701 og 3702 í tollskrá.
  11. Geisladiska, segulbönd, minniskort, minnislykla og aðra óátekna miðla úr vörulið nr. 8523 í tollskrá.
  12. Rafhlöður úr vöruliðum nr. 8506 og 8507 í tollskrá.
  13. Golfkúlur úr tollskrárnúmeri nr. 8506.3200 í tollskrá.
  14. Sokkabuxur og sokka úr vöruliðum nr. 6115 í tollskrá.
  15. Fæðubótarefni.
  16. Drykkjarvatn.

Þá er heimilt að selja einnota burðarpoka í umræddum verslunum.

2. gr.

Rísi ágreiningur um hvort selja megi tiltekna vöru í tollfrjálsri komuverslun, sbr. 1. gr., skal fjármálaráðherra skera úr þeim ágreiningi.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005, og með vísan til laga um yfirstjórn mála á varnarsvæðum o. fl., nr. 106/1954, til þess að öðlast gildi þegar í stað.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.