Fara beint í efnið

Prentað þann 26. apríl 2024

Breytingareglugerð

639/2022

Reglugerð um (20.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

Við 7. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:

44) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1902 frá 29. október 2021 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á tilteknum efnum, sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða sem efni sem hafa eiturhrif á æxlun, í snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2022 frá 18. mars 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 26 frá 21. apríl 2022, bls. 168-173.
45) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/135 frá 31. janúar 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á metýl-N-metýlantranílati, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130/2022 frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 32 frá 19. maí 2022, bls. 554-556.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1902 frá 29. október 2021 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á tilteknum efnum, sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða sem efni sem hafa eiturhrif á æxlun, í snyrtivörur.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/135 frá 31. janúar 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á metýl-N-metýlantranílati.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 30. maí 2022.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.