Fjármálaráðuneyti

639/2012

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði, með síðari breytingum.

1. gr.

2. tölul. 4. gr. orðast svo: Vinnu stjórnenda farandvinnuvéla og vinnuvéla, sem skráningarskyldar eru í vinnuvélaskrá, á byggingarstað.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 3. júlí 2012.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Sóley Ragnarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica