Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

634/2009

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006 um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.

1. gr.

Í stað orðanna "44. gr." í 2. gr. kemur: 6. mgr. 48. gr.

2. gr.

2. málsl. b-liðar 1. mgr. 3. gr. orðast svo: Vistmaður skal hafa 480.000 kr. frítekjumark vegna atvinnutekna við útreikning vistunarframlags.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 6. júlí 2009.

Árni Páll Árnason.

Ágúst Þór Sigurðsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.