Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Breytingareglugerð

629/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 342/2013 um þróun upplýsinga- og fjarskiptatækni til notkunar fyrir skynvædd samgöngukerfi (ITS).

1. gr.

Við 8. gr. reglugerðarinnar bætist nýr f-liður, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1926 frá 31. maí 2017 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar veitingu fjölþátta ferðaupplýsingaþjónustu innan alls Evrópusambandsins.

2. gr.

Með reglugerð þessari er innleidd framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1926 frá 31. maí 2017 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar veitingu fjölþátta ferðaupplýsingaþjónustu innan alls Evrópusambandsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 120 frá 2021 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 12. maí 2021, bls. 422.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 45. gr. vegalaga nr. 80/2007, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 14. maí 2021.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Jónas Birgir Jónasson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.