Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Breytingareglugerð

627/2020

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 540/2020, um fiskeldi.

1. gr.

Á eftir orðinu "fjarlægðarmörk" í 1. málsl. 6. mgr. 18. gr. kemur: sjókvíaeldisstöðvar.

2. gr.

Við 1. mgr. 64. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Reglugerð nr. 1170/2015 um fiskeldi fellur úr gildi nema að því er varðar þær umsóknir og þau rekstrarleyfi sem fjallað er um í ákvæði II og III til bráðabirgða í lögum um fiskeldi nr. 71/2008.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 71/2008, um fiskeldi og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. júní 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.