Innanríkisráðuneyti

623/2013

Reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2013. - Brottfallin

1. gr.

Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk.

Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk skulu nema 0,95% af útsvars­stofni, auk sérstakra framlaga í fjárlögum og úr Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitar­félaga, vegna sölu og leigu eigna sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk. Skulu tekjurnar renna í sérstaka deild innan Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Við skil á staðgreiðslu útsvars samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, skulu Jöfnunarsjóði gerð skil á sínum hluta, sbr. 1. mgr. Fjársýsla ríkisins skal sjá um útreikning á tekjum þessum og skiptir innheimtri staðgreiðslu hvers mánaðar milli ríkis, sveitarfélaga og Jöfnunarsjóðs. Tekjur sjóðsins skulu reiknaðar af þeim stofni sem stað­greiðsla hvers mánaðar er greidd af.

Ennfremur skal Fjársýsla ríkisins við álagningu sjá um útreikning á hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvari af þeim tekjum sem skattlagðar eru eftir á. Fjársýsla ríkisins skal, í uppgjöri stað­greiðslu sveitarfélaga við álagningu útsvars, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitar­félaga, taka tillit til hlutdeildar Jöfnunarsjóðs og gera sjóðnum skil á henni.

2. gr.

Framlög.

Jöfnunarframlög vegna þjónustu við fatlað fólk skiptast í: Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk, framlög vegna breytingakostnaðar, framlög vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA), framlög í Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga svo og önnur framlög.

Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk eru óháð öðrum fram­lögum sjóðsins.

Jöfnunarsjóður sendir sveitarfélögum upplýsingar um áætluð framlög ársins 2013 og greiðslu­dreifingu þeirra eftir því sem við verður komið. Framlög skulu greidd mánaðarlega. Heimilt er að endurskoða framlög innan ársins í samræmi við breytingar á áætluðum tekjum sjóðsins, sbr. 1. gr.

3. gr.

Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2013.

I. hluti: Skipting ráðstöfunarfjármagns.

Áætluðum heildartekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2013, að frádregnum framlögum sem veitt eru til miðlægra verkefna er tengjast yfir­færsl­unni og framlagi í Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, skal skipta milli sveitar­félaga sem mynda þjónustusvæði, sbr. lög nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks, eða ein­stakra sveitarfélaga með eftirfarandi hætti:

  1. 53,34% skiptast hlutfallslega miðað við niðurstöðu mælinga á útgjaldaþörf, sbr. II. hluta þessarar greinar.
  2. 13,33% skiptast hlutfallslega miðað við áætlaðan útsvarsstofn sveitarfélaga 2013.
  3. 33,33% skiptast hlutfallslega miðað við kostnaðarmat Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk árið 2011.Við útreikning framlaga samkvæmt a-lið 1. mgr. I. hluta þessarar greinar skal finna áætlaða útgjaldaþörf hvers þjónustusvæðis eða einstakra sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk með aðferðum sem lýst er í II. hluta þessarar greinar.

Útreiknuð framlög ársins 2013 skal endurreikna eigi síðar en í desember 2013 verði um breyttar forsendur að ræða hvað útreiknaða útgjaldaþörf sveitarfélaga/þjónustusvæða á árinu varðar, sbr. a-lið 1. mgr. I. hluta.

Við greiðslu framlaga á árinu 2013 fer jafnframt fram leiðrétting framlaga ársins 2011 á grund­velli endanlegs álagningarstofns útsvars 2011.

Útreiknuð framlög ársins 2013 skal leiðrétta þegar endanlegur álagningarstofn útsvars ársins 2013 liggur fyrir. Upplýsingar um leiðréttingu skulu liggja fyrir eigi síðar en 31. desember 2014 og skal leiðrétting framlaga til hvers sveitarfélags eða þjónustusvæðis koma til frádráttar/viðbótar almennum framlögum Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2015. Reynist áætlun ársins 2015 lægri en frádráttur vegna ársins 2013 er heimilt að innheimta mismuninn af öðrum framlögum Jöfnunarsjóðs.

 

II. hluti: Mæling á útgjaldaþörf.

Við mælingu á útgjaldaþörf vegna þjónustu við fatlað fólk, sbr. a-lið 1. mgr. I. hluta skal byggja á upplýsingum um einstaklinga sem nutu þjónustu við árslok 2012, m.a. upplýsingum um kostnað og stuðningsþörf fyrir hvern einstakling. Mælingin byggir á mati á kostnaði vegna sérhvers einstaklings í reglubundinni sérhæfðri þjónustu.

Við mælinguna skal greina fylgni flokka stuðningsþarfar, sbr. 6. gr. og kostnaðar á ein­stak­ling árið 2012 og skal sú greining notuð til að ákvarða viðmiðunarfjárhæð fyrir hvern flokk stuðningsþarfar. Ef ekki liggur fyrir mat á stuðningsþörf er heimilt að reikna gildi sem sam­svarar flokkum matsins á grundvelli eldra mats. Heimilt er að reikna álag á ákveðna flokka á grundvelli sérstakrar stuðningsþarfar vegna hegðunar. Ennfremur er heimilt að reikna álag vegna einstaklinga með óvenjulega samsetningu stuðningsþarfar.

Útgjaldaþörf skal mæld með eftirfarandi aðferðum:

  1. Reikna skal útgjaldaþörf á grundvelli viðmiðunarfjárhæða vegna allra einstaklinga sem falla í 4. flokk matsins eða ofar.
  2. Þrátt fyrir ákvæði a-liðar skal reikna útgjaldaþörf vegna einstaklinga í flokki 4 og ofar á grundvelli raunkostnaðar 2012, ef raunkostnaður 2012 og áætlaður viðbótar­kostnaður vegna 2013 er lægri en 33% af einingakostnaði viðkomandi flokks. Ekki reiknast útgjaldaþörf vegna fasteignakostnaðar, sbr. d- lið vegna einstaklinga sem falla undir þetta ákvæði.
  3. Reikna skal útgjaldaþörf vegna barna sem ekki hafa mat á þjónustuþörf á grunni raun­kostnaðar sé hann jafn hár eða hærri en einingakostnaður 4. flokks.
  4. Reikna skal útgjaldaþörf vegna fasteignakostnaðar fyrir alla einstaklinga sem falla í 5. flokk matsins eða ofar og er hann innifalinn í einingakostnaði viðkomandi flokka.
  5. Reikna skal útgjaldaþörf vegna áætlaðs viðbótarkostnaðar árið 2013 vegna ein­staklinga sem ekki hafa mat á þjónustuþörf og skal reiknuð útgjaldaþörf vegna viðbótar­kostnaðar samsvara einingakostnaði 4. flokks.
  6. Reikna skal sérstakt álag á samtölu liða a-e vegna útgjalda við umsýslu fjármála, starfsmannamála og annarra skyldra rekstrarverkefna.
  7. Reikna skal sérstakt álag á samtölu liða a-e vegna útgjalda af ráðgjöf og samhæfingu þjónustu.
  8. Samtala liða a-g myndar grunn að hlutfallslegri skiptingu fjármuna á grundvelli mældrar útgjaldaþarfar, sbr. a-lið 1. mgr. I. hluta þessarar greinar.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal leggja fram gögn sem sýna kostnað skv. hverjum flokki matsins sem og upplýsingar um niðurstöður útreikninga einstakra þátta framlagsins.

 

III. hluti: Útreikningur framlaga.

Þegar niðurstaða liggur fyrir, sbr. a-, b- og c-lið í 1. mgr. I. hluta þessarar greinar skal áætla útsvarsstofn ársins 2013 fyrir hvert þjónustusvæði eða sveitarfélag. Á þeim grunni skal áætla tekjur sem renna beint til þjónustusvæða og sveitarfélaga í formi 0,25% hlutdeildar í útsvarsstofni vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2013.

Finna skal mismun heildarútgjaldaþarfar hvers þjónustusvæðis eða sveitarfélags og áætlaðra útsvarstekna, sbr. hér að framan.

Sé um jákvæðan mismun að ræða milli heildarútgjaldaþarfar sveitarfélaga sem mynda þjónustusvæði eða einstakra sveitarfélaga annars vegar og áætlaðra tekna þeirra í formi 0,25% hlutdeildar í útsvarsstofni hins vegar er sá mismunur greiddur sem almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk.

Almenn framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2013 skulu nema sömu fjárhæð og áætlaðar heildartekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna verkefnisins á árinu 2013 að frádregnum framlögum sem veitt eru til miðlægra verkefna er tengjast yfirfærslunni og í Fasteignasjóð.

4. gr.

Framlög vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).

Við tillögugerð ráðgjafarnefndar um úthlutun framlaga til NPA skal taka mið af áætlun verk­efnisstjórnar NPA að fenginni umsögn samráðsnefndar um málefni fatlaðs fólks.

5. gr.

Framlög vegna breytingakostnaðar.

Á árinu 2013 greiðir Jöfnunarsjóður sveitarfélaga framlag vegna breytingakostnaðar til Sam­bands íslenskra sveitarfélaga sem nemur 0,14% af tekjum sjóðsins í formi 0,95% hlut­deildar í útsvarsstofni, sbr. 1. gr., vegna kostnaðar Sambandsins við verkefni er tengjast þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk á árinu.

Með framlögum vegna breytingakostnaðar er að öðru leyti heimilt að greiða kostnað vegna:

  1. Starfa samráðsnefndar um málefni fatlaðra.
  2. Mats á faglegum og fjárhagslegum árangri tilfærslunnar.
  3. Vinnu að bættu eftirliti með þjónustu við fatlað fólk.
  4. Upplýsingasöfnunar, greiningar og ráðgjafar.
  5. Samræmds mats á stuðningsþörf á landsvísu.
  6. Útfærslu jöfnunaraðgerða og fasteignamála.

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga gerir tillögu til ráðherra um úthlutun framlaga á grundvelli a- til f-liða, að höfðu samráði við samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks og Sam­band íslenskra sveitarfélaga.

Hugsanlegum eftirstöðvum framlaga vegna breytingakostnaðar skal skipta milli þjónustu­svæða/sveitarfélaga á grundvelli tillagna ráðgjafarnefndar til ráðherra að höfðu samráði við samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks og Samband íslenskra sveitarfélaga, m.a. til að koma til móts við þau svæði þar sem hlutfallsleg lækkun framlaga, milli áranna 2012 og 2013, sbr. 3. gr., er veruleg.

6. gr.

Mat á stuðningsþörf.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur forgöngu um samræmt mat á stuðningsþörf á landsvísu, semur við matsaðila um framkvæmd matsins og ber kostnað af því. Heimilt er að ákveða að greiðsla kostnaðar takmarkist við mat á tilteknum fjölda einstaklinga.

Þjónustusvæði og sveitarfélög fela matsaðila, skv. 1. mgr. framkvæmd matsins á grundvelli ákvæða laga um málefni fatlaðs fólks og er Jöfnunarsjóði sveitarfélaga heimilt að krefja matsaðila, þjónustusvæði og sveitarfélög um niðurstöður slíks mats.

Jöfnunarsjóður setur verklagsreglur um mat á stuðningsþörf, sem m.a. kveða á um hlutverk og verkefni einstakra aðila sem koma að matsferlinu. Heimilt er að skipa sérstaka ráð­gefandi vinnuhópa til að fjalla um álitaefni varðandi niðurstöður matsins. Álit slíkra hópa fela ekki í sér stjórnvaldsákvarðanir.

7. gr.

Staðfesting.

Tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutanir framlaga á grundvelli þessarar reglugerðar skulu hljóta staðfestingu ráðherra. Við setningu vinnureglna skal hafa samráð við samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks og Samband íslenskra sveitarfélaga.

8. gr.

Gildistaka og endurskoðun reglugerðar.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 13. gr. a. í lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum og gilda ákvæði hennar frá 1. janúar 2013 enda um ívilnandi reglur að ræða frá þeim sem gilt hafa. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2012 nr. 510/2012.

Endurskoða skal reglugerð þessa eigi síðar en 15. október 2013.

Innanríkisráðuneytinu, 2. júlí 2013.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica