Iðnaðarráðuneyti

622/2012

Reglugerð um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. - Brottfallin

1. gr.

Heimilt er að endurgreiða úr ríkissjóði 20% af framleiðslukostnaði sem til fellur við framleiðslu kvikmynda eða sjónvarpsefnis hér á landi og eftir atvikum í öðru aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. 2. og 5. gr. laga nr. 43/1999, um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, með síðari breytingum.

Við útreikning á endurgreiðslu er tekið mið af heildarframleiðslukostnaði kvikmyndar eða sjónvarpsefnis án tillits til þess hvaða þáttur í framleiðslunni skapar þann kostnað.

2. gr.

Umsókn um endurgreiðslu framleiðslukostnaðar skal senda iðnaðarráðuneyti áður en framleiðsla hefst hér á landi. Nefnd sem skipuð er skv. 3. gr. laga nr. 43/1999 fer yfir innkomnar umsóknir sem skulu vera í samræmi við leiðbeiningar ráðuneytisins um form umsókna.

Telji nefndin að umsókn fullnægi skilyrðum til þess að hljóta endurgreiðslu gerir hún tillögu til ráðherra um að veitt verði vilyrði fyrir endurgreiðslu. Í vilyrði ráðherra fyrir endurgreiðslu skal vakin athygli á heimild, skv. 8. gr. til að fresta endurgreiðslu.

3. gr.

Skilyrði endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari er að viðkomandi framleiðsla sé til þess fallin að koma íslenskri menningu á framfæri, kynna sögu lands eða náttúru eða að viðkomandi framleiðsla sé til þess fallin að stuðla að aukinni reynslu, þekkingu og listrænum metnaði þeirra sem að framleiðslunni standa.

Við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. séu uppfyllt skal byggja á neðangreindu verkefnamati sem er tvíþætt og skiptist í menningar- og framleiðsluhluta.

Í menningarhlutanum eru gefin stig fyrir eftirfarandi liði þar sem hver liður gefur 2 stig sé hann uppfylltur að fullu en 1 stig sé hann uppfylltur að hluta.

a. Söguþráður, viðfangsefni eða meginþema kvikmyndar eða sjónvarpsefnis byggir á atburðum sem eru hluti af íslenskri eða evrópskri menningu, sögu, þjóðararfi eða trúarbrögðum.

b. Framleiðslan byggir á sögupersónu eða einstaklingi úr íslenskum eða evrópskum menningararfi, sögu, samfélagi eða trúarbrögðum.

c. Söguþráður tengist íslenskum eða evrópskum stað eða staðháttum, umhverfi, eða menningarlegu sögusviði.

d. Söguþráður, handrit eða viðfangsefni byggir á bókmenntaverki eða er sótt til annarrar listgreinar (t.d. myndlistar, tónlistar) sem hefur menningarlegt vægi.

e. Söguþráður, handrit eða meginþema beinist að viðfangsefnum líðandi stundar sem hafa vísun til menningar, samfélagsgerðar eða valdakerfis og stjórnmála í íslensku eða evrópsku samfélagi.

f. Framleiðslan endurspeglar mikilvæg íslensk eða evrópsk gildi, t.d. samfélagslega og menningarlega fjölbreytni, samfélagslega samstöðu, mannréttindi, jafnrétti, umburðarlyndi, minnihlutavernd og virðingu fyrir menningu annarra, fjölskyldugildi, umhverfisvernd, virðingu fyrir náttúru og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda. Framleiðslan beinist að íslenskum eða evrópskum siðum og venjum eða menningu og sjálfsmynd.

g. Verkefnið beinist að íslenskum eða evrópskum siðum og venjum eða menningu og sjálfsmynd.

h. Söguþráður, handrit eða viðfangsefni byggir á atburðum í samtíma eða sögu sem hafa þýðingu fyrir íslenskt eða evrópskt samfélag.

Í framleiðsluhlutanum eru gefin stig fyrir eftirtalda liði þar sem hámarksfjöldi stiga sem veittur er fyrir hvern lið er tilgreindur innan sviga. Fjöldi stiga sem veittur er ræðst af því hversu vel framleiðslan uppfyllir viðkomandi viðmið.

i. Framleiðslan leggur til þróunar þeirrar tegundar kvikmyndalistar sem hún tilheyrir (hámark 3 stig).

j. Framleiðslan eykur færni og getu þeirra kvikmyndagerðarmanna sem koma að verkinu til að standa að verkum sem hafa menningarlegt gildi (hámark 4 stig).

k. Þeir sem vinna við framleiðsluna eru íslenskir ríkisborgarar eða ríkisborgarar annars EES-ríkis. Veitt er hálft stig fyrir hvert atriði að neðan en að hámarki 3 stig fyrir liðinn í heild.

i.

Leikstjóri.

ii.

Framleiðandi/meðframleiðandi.

iii.

Stjórnandi kvikmyndatöku (DOP).

iv.

Aðstoðarstjórnandi kvikmyndatöku.

v.

Handritshöfundur.

vi.

Aðalleikari.

vii.

Leikari í aukahlutverki.

viii.

Höfundur tónlistar.

ix.

Leikmyndahönnuður.

x.

Búningahönnuður.

xi.

Klippari.

xii.

Förðunarfræðingur.

xiii.

Yfirmaður framleiðslu.

xiv.

Umsjónarmaður eftirvinnslu eða stafrænnar vinnslu.



l. Endanleg útgáfa framleiðslu er á þjóðtungu EES-ríkis. (1 stig er veitt fyrir 10% af tungumáli framleiðslunnar, 2 stig fyrir 25%, 3 stig fyrir 50% og 4 stig fyrir 75%).

m. Að lágmarki 51% tökuliðs (að frátöldum þeim sem nefndir eru í k-lið) eru ríkisborgarar EES-ríkja (hámark 4 stig).

n. Kvikmyndatökur fara fram á Íslandi (hámark 4 stig).

o. Framleiðslan notast við íslenska þjónustuaðila við tökur á Íslandi (hámark 4 stig).

p. Eftirvinnsla (þar með eftirvinnsla hljóðs og tölvugrafík, stafræn vinnsla, hljóðvinnsla o.fl.) fer fram á Íslandi eða í EES-ríki (hámark 4 stig).

Stig fyrir n-, o- og p-liði eru veitt á grundvelli þess að hve miklu leyti framleiðslan uppfyllir hvert skilyrði. Nefndin metur að hve miklu leyti kvikmyndatökur, þjónustukaup og eftirvinnsla fer fram á Íslandi og hvort hún sé til þess fallin að stuðla að aukinni þekkingu og reynslu innan kvikmyndageirans.

Framleiðslan skal að lágmarki ná samtals 4 stigum úr menningarhlutanum og 23 stigum úr báðum hlutum samtals.

 

4. gr.

Við mat á því hvort endurgreiða skuli hlutfall af framleiðslukostnaði kvikmyndar eða sjónvarpsefnis skal auk skilyrða í 3. gr. fullnægja eftirfarandi skilyrðum:

a. að stofnað sé sérstakt félag um framleiðsluna á Íslandi; íslenskt útibú eða umboðsskrifstofa félags sem skráð er í aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið,

b. að fyrir liggi upplýsingar um helstu aðstandendur kvikmyndar eða sjónvarpsefnis,

c. að fyrir liggi upplýsingar um innlenda aðila og hlutdeild þeirra við framleiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsefnis,

d. að fyrir liggi sundurliðuð áætlun um framleiðslukostnað og fjármögnun auk staðfestingar fjármögnunaraðila,

e. að fyrir liggi greinargerð umsækjanda um að framleiðslan falli að markmiðum laganna,

f. að fyrir liggi upplýsingar um efni fyrirhugaðrar framleiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsefnis, þ. á m. handrit, stuttur efnisútdráttur og upplýsingar um tökustaði,

g. að framleiðsluáætlun liggi fyrir (þ.e. töku- og eftirvinnsluáætlun) sem greinir frá framvindu verkefnisins, þ.e. hvenær áætlað er að vinna við verkefnið hefjist, lykiláfangar í verkefninu og hvenær ráðgert er að ljúka verkefninu og sýna afurðina opinberlega. Framvinduáætlun skal gera ráð fyrir að framleiðslu sé lokið innan þriggja ára frá því að endurgreiðslubeiðni er send ráðuneytinu. Þegar sérstaklega stendur á getur nefnd um endurgreiðslur veitt undanþágu frá þessu skilyrði í að hámarki fimm ár frá dagsetningu vilyrðis,

h. að fyrir liggi hvernig staðið verði að almennri dreifingu,

i. að efni kvikmyndar eða sjónvarpsefnis stríði ekki gegn ákvæðum almennra hegningarlaga.

Verði veruleg breyting á áætluðum framleiðslukostnaði, sbr. d-lið 1. mgr., eftir að framleiðsla hefst skal iðnaðarráðuneyti send uppfærð kostnaðaráætlun.

Þrátt fyrir ákvæði a-liðar 1. mgr. getur umsækjandi um endurgreiðslu dregið það að ganga formlega frá stofnun sérstaks félags um framleiðslu myndar hér á landi, eða skráningu sérstaks útibús eða umboðsskrifstofu eftir atvikum, þangað til að fyrir liggur vilyrði ráðherra um endurgreiðslu, samkvæmt 2. mgr. 2. gr. Skal umsækjandi hafa þrjá mánuði til þess að ganga frá formlegri stofnun félags eða skráningu útibús eða umboðsskrifstofu frá dagsetningu vilyrðis. Hafi umsækjandi ekki gengið frá þessum formsatriðum innan þess tímafrests skal litið svo á að hann hafi dregið umsókn sína til baka.

Auglýsinga- og fréttatengt efni, stuttmyndir, upptökur af íþróttaviðburðum og skemmtunum, efni sem fyrst og fremst er ætlað til kynningar á tiltekinni vöru eða þjónustu, svo og framleiðsla efnis sem fyrst og fremst er ætlað til sýninga í eigin dreifikerfi, skal eigi njóta endurgreiðslu.

5. gr.

Framleiðslukostnaður telst allur sá kostnaður sem heimilt er að draga frá tekjum af atvinnurekstri samkvæmt ákvæðum laga um tekjuskatt og fellur til hér á landi og eftir atvikum í öðru aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 43/1999. Enn fremur skal stjórn og framkvæmdastjóri umsækjanda staðfesta að kostnaðaruppgjör sé í samræmi við ákvæði laga.

6. gr.

Þegar framleiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsefnis er lokið skal umsækjandi senda iðnaðarráðuneyti bréflega staðfestingu þar að lútandi með beiðni um útborgun endurgreiðslu.

Slíkri beiðni skal fylgja:

a. Ársreikningur eða árshlutareikningur framleiðslufélagsins sem dagsettur er eftir lok framleiðslunnar.

b. Sundurliðað yfirlit um framleiðslukostnað þar sem endanlegur kostnaður er borinn saman við kostnaðaráætlun, og eftir atvikum leiðrétta kostnaðaráætlun, sem send var iðnaðarráðuneyti þegar sótt var um endurgreiðslu framleiðslukostnaðar. Ef hluti af framleiðslukostnaði uppfyllir ekki skilyrði 3. mgr. 2. gr. laga nr. 43/1999 um skattlagningu launa og verktakagreiðslna skal frádráttur vegna þeirra koma skýrt fram við framsetningu á framleiðslukostnaði sem sótt er um endurgreiðslu fyrir.

c. Ef verulegur mismunur er á áætlun og raunverulegum kostnaði skv. einstökum kostnaðarliðum skal til viðbótar fylgja greinargerð þar sem slík frávik eru skýrð. Verulegur mismunur telst vera á þeim liðum þar sem endanlegar fjárhæðir víkja meira en 20% frá upphaflegri áætlun.

d. Sundurliðun á framleiðslukostnaði eftir þeim löndum sem hann féll til í.

e. Staðfesting stjórnar og framkvæmdastjóra umsækjanda um að kostnaðaruppgjör sé í samræmi við ákvæði laga nr. 43/1999, um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, með síðari breytingum, og reglugerða settra á grundvelli þeirra.

Nemi endurgreiðslan hærri fjárhæð en 20 milljónum króna skal kostnaðaruppgjör jafnframt endurskoðað. Í því skyni að staðreyna kostnaðaruppgjör getur nefnd skv. 3. gr. óskað eftir viðeigandi upplýsingum frá skattyfirvöldum sem og bókhaldi félagsins. Sé kostnaðaruppgjör og/eða fylgigögn þess ófullnægjandi skal nefndin veita umsóknaraðila frest til að skila inn fullnægjandi gögnum. Berist nefndinni ekki fullnægjandi gögn við lok frestsins eða bendi gögn málsins til að kostnaðaruppgjör sé ekki í samræmi við ákvæði laga nr. 43/1999 skal hún leggja til við ráðherra að beiðni um endurgreiðslu verði hafnað.

Berist beiðni um útborgun endurgreiðslu eftir að sex mánuðir hafa liðið frá lokum framleiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsefnis skal hafna henni.

7. gr.

Telji nefndin að skilyrðum um endurgreiðslu sé fullnægt gerir hún tillögu til ráðherra um endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari og lögum nr. 43/1999.

8. gr.

Hafi umsækjandi hlotið styrk frá opinberum aðilum til framleiðslunnar dregst styrkurinn frá framleiðslukostnaði skv. 5. gr.

Samanlagður styrkur opinberra aðila og heildarfjárhæð endurgreiðslu skv. 1. gr. fyrir kvikmynd eða sjónvarpsefni skal ekki fara yfir 85% af heildarframleiðslukostnaði þeirrar kvikmyndar eða sjónvarpsefnis.

Fjárhæð endurgreiðslna samkvæmt reglugerð þessari er háð fjárveitingum Alþingis í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ráðherra hefur heimild til að fresta útborgun endurgreiðslna sem kunna að vera umfram fjárveitingar Alþingis hverju sinni. Séu samþykktar endurgreiðslur á fjárlagaárinu umfram fjárveitingar er ráðherra heimilt að fresta endurgreiðslu, annað hvort að öllu leyti eða að hluta til, yfir á næsta fjárlagaár.

9. gr.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 7. gr. laga nr. 43/1999, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Á sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1011/2007 með áorðnum breytingum.

Iðnaðarráðuneytinu, 13. júlí 2012.

Steingrímur J. Sigfússon.

Kristján Skarphéðinsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica