Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Breytingareglugerð

614/2021

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 822/2010 um flutning úrgangs á milli landa.

1. gr.

Á eftir s-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur nýr stafliður svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2174 frá 19. október 2020 um breytingu á I. viðauka C, III. viðauka, III. viðauka A, IV., V., VII. og VIII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs, sem vísað er til í tölul. 32c í XX. kafla viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 244/2020, þann 30. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 21. janúar 2021, bls. 72-80.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2174 frá 19. október 2020 um breytingu á I. viðauka C, III. viðauka, III. viðauka A, IV., V., VII. og VIII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 43. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 27. maí 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.