Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

610/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 989/2016, um skipsbúnað, með síðari breytingum.

1. gr.

Á eftir d-lið 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1206 frá 30. apríl 2021 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/90/ESB um búnað um borð í skipum að því er varðar gildandi staðal fyrir prófunarstofur sem samræmismatsstofur nota fyrir búnað um borð í skipum. Tilskipunin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 347/2021 frá 10. desember 2021. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 17. febrúar 2022, bls. 814-815.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 24. gr. skipalaga nr. 66/2021 og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 18. maí 2022.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.